Uppáferðir

Uppáferðir eru mikið stundaðar á Íslandi og reyndar víða um heiminn. Þær standa mismunandi lengi og eru háðar líkamlegu ástandi, þreki og slíku, þeirra sem þær stunda. Þetta stunda að sjálfsögðu jafnt kallar sem konur og oftast saman. Oftast leiða þær til fullnægingar sem líður um kroppinn eins og lóusöngur að vori. Stundum líður fólki reyndar eins og það hafi setið undir langri ræðu hjá Hjörleifi Guttormssyni en það er önnur saga. Oft endist þessi fullnæging svo dögum skiptir og sumu fólki ævilangt. Þess vegna hef ég ákveðið að lýsa eftir hluthöfum í fyrirtæki sem ég hyggst stofna. Er það ekki síst vegna sívaxandi áhuga fólks á uppáferðum. Fólk getur keypt sér uppáferðir, farið upp á allan fjandann, t.d. fjöll, holt og hæðir. Ef menn eru t.d. staddir niðri á Lækjartorgi geta þeir komist upp á Hlemm(ekki landnámsmann). Konur geta til dæmis farið upp á (L)loft og karlmenn upp á háaloft.Örugglega verður mikill áhugi fyrir annars konar uppáferðum og auglýsi ég hér með eftir tillögum í þeim efnum. Þett'er allt upp á við, elskurnar mínar, eða hvað?

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Góð hugmynd bloggvinur

...hef aldrei setið undir langri ræðu hjá Hjörleifi, er hægt að lýsa þeirri tilfinngu fyrir mér nánar?

uppáferðir eru alltaf skemmtilegar eyddi fríinu í uppáferðir í náttúrunni og naut  

Marta B Helgadóttir, 9.8.2007 kl. 17:48

2 Smámynd: Bergur Thorberg

Já, er það ekki? Ég hef að vísu ekki setið undir ræðum Hjörleifs á Alþingi en ég hef málað undir ræðum hans í sjónvarpi og þau verk sýni ég ekki obinberlega. Nú er bara að breinstorma og koma barninu á koppinn.

Bestu kveðjur frá kaffikallinum 

Bergur Thorberg, 9.8.2007 kl. 18:07

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Mikid er bloggid titt skemmtilegt aflestrar...er tad ekki orugglega a uppferd????

Hvernig vaeri ad bjoda upp a ferdir upp a ...... mer dettur ekkert snidugt i hug

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 10.8.2007 kl. 09:42

4 Smámynd: www.zordis.com

Allt á uppleið í fjörugum ferðum kaffikarlsins! Ma ma ma verður bara upp með sér thi hi hi ....

Laugardagskaffikveðjur, by the way, kaffikannan mín er lasarus og ég fór á veitingarstað til að fá mér gott kaffi!

www.zordis.com, 11.8.2007 kl. 17:08

5 Smámynd: Karl Tómasson

Hefur þú farið upp á Esjuna kaffiKarl?

Bestu kveðjur úr Mosó frá Kalla Tomm.

Karl Tómasson, 11.8.2007 kl. 23:50

6 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Flott mynd hjá þér.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 12.8.2007 kl. 05:06

7 Smámynd: Bergur Thorberg

Takk Kristín. Það eru ekki allir sem hafa augu. Og Kalli, Þú hefur líklega aldrei séð Esjuna mína? Veistu hvað hún er há? Þegar ég málaði hana, þá var hún 909 m. Sumir hafa hækkað hana upp í 914m. Þegar ég var búinn með Esjuna Þetta átt þú að vita, búandi nálægt henni. Seinna málaði ég fjármálafjöll, eins og Nasdag mountain og Dow Jones mountains, eins og það heitir á nútíma færeysku, en það hefur kannski farið fram hjá þér. Ekki mér.

Guð geymi þig kallinn minn.

Bestu kveðjur frá  kaffikallinum

Bergur Thorberg, 13.8.2007 kl. 23:42

8 Smámynd: Bergur Thorberg

OG Þið, öll,  Guð geymi ykkur

b.kv. fr?

Bergur Thorberg, 13.8.2007 kl. 23:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband