Gamlar tuggur

Mamma Mia!!! Stikkan Andersson snýr sér við í gröfinni þegar hann heyrir þetta. Hann væri kominn með eitthvað nýtt og ferskt á markaðinn. Ekki alltaf sama gamla tuggan. Við Íslendingar erum náttúrulega snillingar í eftiröpun og gömlum tuggum. Sumir listamenn á Íslandi gefa sig út fyrir að vera "orginal", en eru svo með erlent efni og gamlar tuggur í höndunum. Og flestir sætta sig við það. Mamma Mia.
mbl.is Mamma Mía! þvílíkur fjöldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Wow, þokkalega bitur. Hvað var málið þarna? Singalong við kvikmynd hérlendis, mér finnst merkilegt að það tókst. Fólk hér er venjulega svo lokað.

Þú þarft að fá þér einhverjar gleðipillur og skrepp stundum út þegar það er bjart. Þessi flata, óspennandi og karakterlausa "list" þín myndi kannski skána pínulítið við það.

Egill (IP-tala skráð) 31.8.2008 kl. 11:58

2 Smámynd: Bergur Thorberg

Abb abbb abb. Einn sár.

Bergur Thorberg, 31.8.2008 kl. 12:27

3 Smámynd: Sigrún Sigurðardóttir

Mamma mía var sýnd eina ferðina enn í bíó á Ísafirði í gærkvöldi og eftir bíó var svo boðið upp á Abba skemmtikvöld í Krúsinni.....algjört abba-æði gripið um sig í kjölfar þessarar myndar hehe...ég hélt mikið upp á Abba hér áður fyrr en er nú ekki farin að sjá þessa mynd ennþá fyrir það sennilega af því að ég nenni yfirleitt ekki að fara á bíósýningar

Sigrún Sigurðardóttir, 31.8.2008 kl. 12:37

4 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Ég elska gamlar tuggur, sérstaklega þegar þær eru algerlega klassískar og tímans tönn virðist ekki vinna algerlega á þeim .... Myndin er konfekt fyrir augu og eyru og þessi músíkk er yndisleg, - amk að mínu mati.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 31.8.2008 kl. 12:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband