Fara Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Davíð Oddsson með völdin í landinu?

Það er alltaf að koma betur og betur í ljós að íslensk stjórnvöld ráða harla litlu um framgang efnahagsmála hér á landi. Það kemur vel fram í þessari frétt. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn ræður ferðinni. Kannski situr Davíð sem fastast, því hann veit meira en Jóhanna um samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Það á þá eftir að koma í ljós. Svona ástand í stjórnun landsins gengur ekki lengi. Sjóðurinn og Davíð ráða öllu.
mbl.is Tæknilegar ábendingar í trúnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

akkúrat það sem ég var að hugsa. Fréttin er skrítin, já og hún minnir mig á frétt af leikskólakrökkum sem spyrja fyrst áður en þeir fá að prófa einhver ný leiktæki. Hvaða völd hefur stjórnin okkar???

Og síðan vitleysan að ætlast til að fá opinbert svar frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Ha??? Þetta er stór stór stór stofnun með fullt af álíka hæfu fólki og er og var hjá okkar FME. Aldrei mun eitthvað "official" koma frá þeim. Og ef eitthvað kemur, þá mun vera hægt að skilja hverju einustu setningu á 13 máta.

áhugasamur (IP-tala skráð) 9.2.2009 kl. 20:13

2 Smámynd: Offari

Kannski tókst Davíð að setja sín einræðisvöld inn í samninginn.

Offari, 9.2.2009 kl. 20:20

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Er eitthvað nýtt við það að IMF sé að tjónka upp á enn einn einræðisherrann í einhverju bananalýðveldinu? (afsakið: nýmarkaðsríki)

Guðmundur Ásgeirsson, 9.2.2009 kl. 22:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband