Borgiði fólkinu!!

Þetta finnst mér hreinn og beinn aumingjaskapur að hálfu opinberrar stofnunar. Löng helgi framundan og flestir atvinnulausir sjálfsagt blankir. Barnafólk jafnt sem aðrir. Þetta er lúalegt. Nauðsyn brýtur lög.
mbl.is Bætur greiddar út eftir helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tjahh, Þeir ákvaðu bara að afskrá mig!!! Er ekki viss um að ég fái neinar bætur! Og það annan mánuðinn í röð

Hlynur (IP-tala skráð) 29.4.2009 kl. 17:50

2 Smámynd: Guðjón Ólafsson

Vinnumálastofun er sú stofnun sem reynir hvað mest að þurfa ekki greiða símun skjólstæðingum og reyna allt til að láta fólk líða skort.

Guðjón Ólafsson, 29.4.2009 kl. 18:00

3 identicon

Ég var að skoða bankayfirlitið mitt og fæ ekki betur séð en að ég hafi fengið greiddar bætur 31. des en ekki fyrsta virka dag janúar.

þannig að það eru greinilega aðrar reglur fyrir áramót en á alþjóðlegum degi verkalýðsins.

Tómas M° (IP-tala skráð) 29.4.2009 kl. 18:12

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Hmmm..... og ég sem ætlaði að halda upp á afmæli dóttur minnar á föstudaginn, búið að bjóða bekkjarfélögum hennar og allez. En það verður víst lítið um veitingar þar sem peningar til matarinnkaupa eru á þrotum. Ætli Jóhanna og Steingrímur geti útskýrt það fyrir stelpunni að við þurfum að fresta afmælinu hennar?

Guðmundur Ásgeirsson, 29.4.2009 kl. 20:46

5 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Tómas: við atvinnulausa pakkið erum náttúrulega ekki verkalýður ef við vinnum ekki, og getum þ.a.l. étið það sem úti frýs 1. maí.

Annars er ég enn ósáttari við úthlutunarreglurnar - ég var í 44% vinnu og fæ því ekki nema tæp 60.000, og sjálfsagt enn minna núna vegna allra 'frídaganna' í apríl! Þar sem ég neyðist til að búa hjá mömmu á ég þar að auki ekki rétt á uppbót frá féló. Þar er ekki tekið neitt tillit til þess að móðir mín er öryrki - hún á bara að gjöra svo vel og halda mér uppi...eða ég að sleppa því að borga skuldir til að geta lifað.

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 29.4.2009 kl. 22:46

6 Smámynd: Bergur Thorberg

Já þetta er ömurlegt. Þetta ætti að vera eitt símtal fyrir Jóhönnu. Málið dautt. En vextirnir eru mikilvægari en fólkið. Þeir geta ávaxtað bæturnar í 3-4 daga á kostnað atvinnulausra. Ég skora á Jóhönnu að kippa þessu í liðinn strax á morgun.

Bergur Thorberg, 29.4.2009 kl. 22:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband