Af hverju er Jóhanna alltaf síðust til?

Ég get ekki að því gert að mér finnst Jóhanna alltaf vera síðust að borðinu þar sem liggja óleyst verkefni í bunkum. Ég hef borið mikla virðingu fyrir Jóhönnu í gegnum árin en síðustu mánuði finnst mér eins og úr henni sé allur kraftur. Verkefnin eru að vísu mjög stór og ekki auðleysanleg en hún gæti nú valið sér kröftugri aðstoðarmann en Hrannar Arnarsson.... eða eins og einhver sagði... ég verð nú að segja það. Hann hefur greinilega ekki hundsvit á almannatengslum, eins og bersýnilega hefur komið í ljós að undanförnu. Svo hef ég nú lúmskan grun um að á bak við Jóhönnu séu ýmsir hugmyndafræðingar sem mættu að skaðlausu velta fyrir sér hvort þeir eru á réttum stað.
mbl.is Jóhanna á vef Financial Times
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Aldurinn segir til sín

Finnur Bárðarson, 13.8.2009 kl. 20:27

2 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Ætli þú vitir ekki minnst um hvað hún er að gera.... og það sem hún gerir er yfirvegað og tímasett í samræmi við atburðarás..

Hávaði í fjölmiðlum og hróp og köll segja ekkert til um afköst...

Jón Ingi Cæsarsson, 13.8.2009 kl. 20:30

3 identicon

Jóhanna hefur enga þekkingu í efnahagsmálum og er bara frontur. Sameiningartákn eins og forsetinn. Efast að hún hafi gert nokkrar athugasemdir sjálf við þessa grein sem skrifuð var fyrir hana.

Kristín (IP-tala skráð) 13.8.2009 kl. 21:01

4 Smámynd: Hörður Einarsson

Svolítið sein að hugsa, eða hvað?

Hörður Einarsson, 13.8.2009 kl. 21:43

5 Smámynd: Þorri Almennings Forni Loftski

Það getur verið hún sé dálítið sein á sér og lítið fyrir að stíga í sviðsljósið. Rétt er það að hún hefði átt að vera aktívari út á við og ferðast meira, tala við erlenda ráðamenn persónulega. Út á það gengur pólitíkin, alþjóðasamskipti. Þetta er oft persónulegt. Þess vegna fara fínimenn í heimsóknir, og sendiráð eru ekki bara kokteilboð, það er ekki nóg að nota netið ennþá. Ekki einungis Hardeea þetta samanber ,,ég hefði kannski átt að tala við Brown."

Það er seint í rassinn gripinn.

En að svokallaður forseti landsins, viðskiptafulltrúi skuldakónganna, sé sameiningartákn. Segðu mér annan.

Þorri Almennings Forni Loftski, 13.8.2009 kl. 22:14

6 Smámynd: Þorri Almennings Forni Loftski

Meinti rassinn gripið. Auk þess er hún of upptekinn til að þvælast um. Þótt ekki sé árangur vinnunar kominn í ljós. Kannski er flugfreyjan fyrir löngu búin að fá nóg af þvi að fljúga

Þorri Almennings Forni Loftski, 13.8.2009 kl. 22:18

7 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Flugfreyjur fara alltaf síðast út úr brennandi flugvél. Ekki þessi á TF-RÁN. Hún ætlar að fórna farþegunum.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 13.8.2009 kl. 23:18

8 Smámynd: Björn Birgisson

  • Jóhanna Sigurðardóttir er kjarkmesta og kraftmesta kona Íslands um þessar mundir.  Flóknara er það nú ekki, mínir kæru landar. Ef við ættum kjark og þor þessarar konu værum við í forustusveit fyrir landi og lýð. Hvað erum við að gera? Mestan part ekki neitt. Nöldra svolítið kannski. Alvöru Íslendingar fylkja sér að baki Jóhönnu og hennar fólki og gefa endanlega skít í frjálshyggjuna. Mörlandi allt.

Björn Birgisson, 14.8.2009 kl. 01:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband