Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Blaðamaður bullar... hvað hefur hlaupið í hann á hlaupársdegi?

Ef hlaupársdagur er hvíldardagur af hverju ætti ég þá að ihuga fortíðina, nútíðina og framtíðina? Í fréttinni kemur fram þversögn.  Að íhuga og hugsa er mikil vinna og þess vegna tek ég frí í dag og blogga út í bláinn. Skil ekki ennþá innihaldið í þessari frétt. Vonandi er það vegna hvíldar minnar frá skilningi. Blaðamaðurinn ætti aftur á móti að nýta daginn til að skilja betur hvað hann skrifar ef honum nægja ekki 365 dagar á ári til þess. Kannski hafa skólastofurnar í MA verið orðnar þreyttar á áreiti kennara og nemenda með misvitrar skoðanir í gegnum tíðina. Og eru hvíldinni fegnar. Kannski veit blaðamaður meira um það. Ekki veit
mbl.is Hlaupársdagur er hvíldardagur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

50 atkvæði gefa eina milljón dollara

"Ef svona 50 manns kjósa mig vinn ég þetta örugglega?, segir fyrirsætan. Ég fékk einu sinni 50 atkvæði í kosningu í Ungmennafélaginu en ég fékk ekki eina milljón dollara. Ætli þeir peningar séu í lottóinu núna? Tímarnir hafa náttúrulega breyst. Og mennirnir með, eða hvað?
mbl.is Ásdís Rán gæti unnið tugi milljóna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fótboltaofbeldi?

Lögreglumaðurinn sem varð fyrir árásinni á alla mína samúð. Þetta er að verða eins og í fótboltanum. Og er þá mikið sagt.
mbl.is Skallaði löggu tvisvar í andlitið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kláraðar vísur til Kírgistan (frh.)

Þraukar í Kírgistan

þar mun víst dýr kistan.

Hann las þar verðlistann

lífið því ei misst'ann.


Konur og upplýstir karlmenn...... allir í Spron.......

Það hlaut að koma að því að kafteinninn yfirgæfi hið sökkvandi skip. En ekki síðastur eins og alvöru kafteinar gera yfirleitt. Í staðinn fyrir að viðurkenna mörg mistök sem gerð hafa verið á síðustu misserum í Spron velur stjórnarformaðurinn að koma fram með hraðsoðnar afsakanir um slæmar aðstæður erlendis og afsaka á mjög svo ósannfærandi hátt gífurlaun forstjóra sem greinilega er ekki starfi sínu vaxinn, þó hann sé búinn að velkjast um í bankakerfinu svo lengi sem aldnir menn muna. Og svo er hann verðlaunaður fyrir! Hluthafar, hafandi trú á fyrirtækinu, borga brúsann. Það er klíkulykt af þessu Spron dæmi og yfirklóranir stjórnarformanns, hjákátlegar. Nú er búið að keyra skipið í kaf og nú eiga aðrar konur að redda því sem reddað verður af því að konur eru svo hagsýnar og kunna að sýna ráðdeild. Þetta eru nánast orð stjórnarformannsins. Og svo rúsínan í pylsuendanum: Konur og upplýstir karlmenn beina í auknum mæli viðskiptum sínum til fyritækja sem sýna jafnrétti í verki. Þar hafið þið það. En hvar eru hinar upplýstu konur? Hvar hefur þessi kona, sem nú yfirgefur Spron, verið upplýst? Í ljósi kolkrabbans? Eða SÍS? Eða bara í gamalli ljósmynd af gamalgrónu fjölskyldufyrirtæki, sem aldrei var á hlutabréfamarkaði? Spyr sá sem ekki veit. Ekki á ég krónu í Spron.


mbl.is SPRON hefur goldið fyrir ytri aðstæður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beðið um botn við vísu sem á að fara til Kírgistan

Beðið um botn. Allt að 1000$ í boði mannréttindarfrömuða. Lagið semjum við svo í beinu framhaldi. Ferðina til Kírgistan verðum við líklega að borga sjálf, nema............................... 

 

Þraukaðu í Kírgistan

þar mun ansi dýr kistan.

 


mbl.is Hvað rímar við Kírgistan?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af masókistum.........

Skyldu masókistar velja sér masókistur sem hinstu hvílu? (Geiri hljóðmaður feb. 2008).

Glerglugginn góði og lífið

Minni á færslu mína frá 21.jan.

 


mbl.is Skorið á púls til að koma í veg fyrir kviksetningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki núverandi....fyrrverandi... kannski verðandi.. borgarstjóri í frí til Pakistans?

Í Pakistan býr maður að nafni Musharraf sem vill ekki hætta. Það má örugglega læra sitthvað af honum. Í valdhaldi. Halda svo námskeið í Valdhöll þegar heim er komið fyrir þá sem styttra eru á veg komnir í að halda valdinu. Örugglega fullt út úr dyrum.


mbl.is Þrjú gefa kost á sér í borgarstjóraembættið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skólabókardæmi um meistaraþjálfun

Það var unun að fylgjast með Juande Ramos stýra sínu liði til verðskuldaðs sigurs fyrr í dag á Wembley. Hvernig hann stjórnaði sínu liði í dag, var skólabókardæmi í meistaraþjálfun og hvernig fingraför hans og aðstoðarþjálfara hans, Gustavo Poyet, voru um allt inni á vellinum, allan leikinn, er tær snilld. Og hana nú!


mbl.is Tottenham deildabikarmeistari í fjórða sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband