Bloggfærslur mánaðarins, september 2009

Raunverulegir uppvakningar

Fyrir þá sem ætla að leika uppvakninga á Hrekkjavöku er alveg tilvalið að fara niður á Alþingi og sjá hvernig þingmennirnir líta út. Ef það dugar ekki þá er mönnum ráðlagt að horfa á Spaugstofu kvöldsins 149 sinnum og greipa inn í sál sína raunverulega uppvakninga og taka eins og 10 "Út og Suður þætti með Gísla í leiðinni. Þá ætti þetta að vera komið.
mbl.is Greiðslubyrði aftur fyrir hrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir eru bestir?

Spursarar..... auðvitað..... Robbie Keane með fernu. Voruð þið nokkuð að horfa ..... Púlarar??  Tottenham 5  Burnley 0 .


mbl.is Fyrsta tap Chelsea - Keane með fernu fyrir Tottenham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fokking fokk...enn og aftur

Er ekki kominn tími til að segja þessum Hollendingum og Bretum að fara til helv.... búið að sanna að þeir eru á atkvæðaveiðum heima fyrir og í skíta málum heima.
mbl.is Össur fundaði vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi ekki íkveikja

Ja..... það virðast loga feigðarlogar á Íslandi. Ég ætla bara rétt að vona að ekki sé um íkveikju að ræða. En hvað veit maður á þessum síðustu og verstu. Það virðist enginn hafa verið inni í húsinu er eldurinn kom upp..... nema hugsanlegur brennuvargur. Vonandi tekst mönnum að slökkva eldinn skjótt en slökkviliðsmenn okkar eru snillingar.... það hafa þeir marg oft sýnt.
mbl.is Eldur í þaki Höfða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Doddsson og Johannessen......

Doddsson og Johannessen? Hvaða hljómsveit er það? Er hún úr Hrunamannahreppnum?
mbl.is „Fortíðin til framdráttar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Draumur um foss og tvo menn

Það hljómar kannski undarlega og hallærislega en í draumi í nótt var ég staddur á þessum slóðum og komu til mín tveir menn sem sögðu mér frá ægifögrum fossi sem leyndist inni í botni dalsins og enginn virðist hafa uppgötvað fyrr. Lýstu þeir fossi þessum sem vatnsmiklum og breiðum og stærri en Dettifossi. Draumur búinn.
mbl.is Fundnir heilir á húfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju var Finnur Ingólfsson ekki ráðinn?

Af hverju var Finnur Ingólfsson ekki ráðinn ritstjóri Viðskiptablaðsins? Er KolkrabbaSÍS klíkan eitthvað að klikka á'ðví?
mbl.is Sigurður Már ritstjóri Viðskiptablaðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kúkakolkrabbismi.... eina ferðina enn

Það er þá komið á daginn sem ég var að ýja að í morgun. Klíka innan Sjálfstæðisflokksins  teflir fram einum aðalleikarunum í íslenska efnahagshruninu, fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokksins sem ritstjóra blaðsins. Með Harald Johannessen sem kylfusvein. Ísland breytist lítið. Sjálfstæðisflokkurinn stal fiskinum frá þjóðinni með dyggri aðstoð Framsóknarmanna......Sjálfstæðisflokkurinn stóð að helmingaskipta leiðinni í sölu bankanna með Framsókn... nánast stuldur frá þjóðinni...... Sjálfstæðisflokkurinn setti leikreglurnar sem bankarnir störfuðu eftir fram að hruni........ Sjálfstæðismenn eiga Morgunblaðið. Eigendur eiga eftir að ræða við ritstjóra um stefnuna á blaðinu (Hallgrímur Magnússon í Kastljósi rétt áðan). Er það allt sjálfstæðið sem ritstjórnin og blaðamenn hafa? Þetta er bara kúkakolkrabbismi eina ferðina enn... einfalt mál.  Hevítis fokking fokk!
mbl.is Davíð og Haraldur ritstjórar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

I don´t understand this

Ætli málið sé ekki bara að enginn skilur upp né niður í þessum spurningarlista.... sama á hvaða máli hann er? Varla eru bændur eitthvað verri í ensku heldur en aðrir landsmenn? Eða hvað?


mbl.is Spurningalisti ESB ekki þýddur á íslensku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innansveitarkróníka í Hádegismóum

Nú vaknar spurning: Eru eigendur Morgunblaðsins að losa sig við fólk með óþægilegar skoðanir? Skoðanir sem samræmast ekki skoðunum eigandanna? Eða er þetta eingöngu á viðskiptalegum forsendum? Sá grunur læðist að manni að verið sé að losa sig við fólk sem þvælst gæti fyrir nýjum ritstjóra. Hver svo sem það nú verður. Eitt er víst að að það er tilvistarkreppa á Mogganum og eitthvað mikið þarf til að hlutirnir lagist á þeim bænum. Og fólkið í landinu verði tilbúið að kaupa þessa innansveitarkróníku sem er í gangi í Hádegismóum.
mbl.is Uppsagnir hjá Árvakri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband