Handrukkarahetja lumbrar á fjölskylduföður?

Enn ein "stríðshetjan" stefnir á hið "Hvíta Hús". Er ekki kominn tími til að við, hið svokallaða fullorðna fólk, skiljum innihald og merkingu þeirra orða sem við notum dags daglega? Stríðshetja? Herforingi sem stjórnar og skipuleggur dráp á saklausu fólki? Hvers konar kjaftæði er þetta? Við gætum alveg eins tekið okkur í munn: "Handrukkarahetja lumbrar á fjölskylduföður". Hvað er svona hetjulegt við að drepa og limlesta fólk? Hvaðan kemur þessi hugsunarháttur? Frá Bandaríkjunum? Eða úr Íslendingasögunum? Og til að kóróna allt saman þurfa "stríðshetjur" að búa í hvítu húsi, svona til að undirstrika sakleysið. Stríðshetjur eiga skilið að búa í hvítu húsi á gamals aldri. Svona virðingarvottur fyrir allar "hetjudáðirnar". Magnús Ásgeirsson skáld og ljóðaþýðandi bjó til nýyrðið "biðhetjur" um börnin sem biðu í kjöllurum Lundúnaborgar í seinni heimsstyrjöldinni eftir að sprengjurnar myndu falla. (Úr þýðingu hans á ljóði Nordahls Grieg). Það voru hetjur. En blessuð börnin, Þau báðu ekkert um það, að verða hetjur.
mbl.is Giuliani hættur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú kannast við hvar Nordahl Grieg yfirgaf þetta tilverustig? Lancastervélin, sem hann var í, var skotin niður yfir Berlín þar sem hún var að úða sprengjum yfir "biðhetjurnar" í kjöllurum borgarinnar. Skyldi Noddi hafa verið hetja? Tja, aldregi að vita .

Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 12:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband