Er Hitler genginn aftur?

Áður en ég lýsi yfir viðbjóði mínum á verknaði þessum öllum, vil ég heyra meira frá Ríkisútvarpi Austurríkismanna, ORF. Sé þetta satt skal ekki standa á mér að hafa um verknaðinn fleiri orð. Var ekki einhver kall í den, sem gerði allt vitlaust og dró með sér milljónir manna til grafar. Sveiattann. Mig minnir að hann hafi verið fæddur í Austurríki. Þið leiðréttið mig ef ég fer með rangt mál.
mbl.is Lokaði dóttur sína inni í 24 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Þessi austurríski sykkopatt sem læsir dóttur sína í kjallara og notar hana til kynferðislegra hluta er ekki neitt skyldur vandamálunum með Hitler. Stalín frá Georgíu. Eru þá Georgíubúar klikk? ÓRG frá Ísafirði, eru þá Ísfirðingar allir "kommar"?

Ólafur Þórðarson, 27.4.2008 kl. 14:24

2 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Hvernig dettur einhverjum manni í hug að gera svona voðaverk og það í tugi ára...vona að hann fái að blása út sannleikann með góðu eða illu, áður en hann drepst. Vitskert veröld, get ekki annað sagt og allir heyrnalausir og blindir eða hvað, þarna í bænum. OJ, óþverri, OJ.

Eva Benjamínsdóttir, 27.4.2008 kl. 20:28

3 Smámynd: Kristbergur O Pétursson

Þetta er hryllingur. Það má búast við því að fleiri svona mál komi í dagsljósið fyrr eða síðar.

Kristbergur O Pétursson, 28.4.2008 kl. 08:22

4 identicon

Hvað eru menn alltaf að kvarta yfir Adolf? Hvað höfum við á hann? Reykti ekki! Drakk ekki! Át ekki kjöt; bara grænmeti og pasta! Stundaði ekki kynlíf; og var þar af leiðandi ekki barnaníðingur! Samt virðast menn finna honum allt til foráttu! Það er vandlifað!

G.Benzen (IP-tala skráð) 28.4.2008 kl. 09:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband