Hversu lengi eigum við að hlusta á þennan þvætting?

Það er ekki trúandi einu orði sem kemur út úr hinum nýju RÍKISBÖNKUM þessa dagana. Þar eru hinir NÝJU stjórnendur að fjalla um sjálfa sig og sína, og sínar eigin skuldbindingar og viðskiptaráðherra segist ekki vita neitt um málið. Þetta er svo ógeðfellt að engu tali tekur. Á sama tíma má almúginn éta það sem úti frýs. Hversu lengi eigum við að hlusta á þennan þvætting? Eigum við bara að ræða þetta í eldhúsinu eða á kaffistofunni? Nei, nú er komið að alvöru mótmælum. Er ekki kominn tími til að setjast inn í bankana og fara ekkert út, fyrr en þessi mál eru komin á hreint?
mbl.is Þurfa ekki að greiða fyrir hluti í Kaupþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En og aftur aetlar islenskur almenningur ad leyfa tessum hvitflipa banka glaepamonnum ad komast upp med ad reana almennings fe,, ef eg raeni banka ta fer eg i fangelsi,, svo einfalt er tad,, ef tetta vaeri erlendis vaeri vidskiptaradherra buinn ad segja af ser ef hann laetur svona vidgangast, krafa almennings er alltaf sterkari erlendis en a islandi, enginn hefur sagt af ser i neinni stodu hvort sem tad er i banka eda rikistjorn,,, Island nu er kominn timi a rotaekar adgerdir,,,, Ef einhver raenir tig, hvad gerir tu?

Omar (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 08:27

2 identicon

Þangað til umræðan um Grímseyjarferjuna kemst í gang aftur, hm.

Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 10:16

3 Smámynd: Sævar Einarsson

Þetta kallast á góðri Íslensku skattsvik, þjófnaður og bankarán. Skattsvik fyrir að borga 10% fjármagnstekjuskatt af arði hlutabréfa sem þeir áttu ekki, þjófnaður að stinga 90% af arðinum beint í vasann og bankarán að afskrifa skuldir sín á milli. Hvaða dóm ættu þessir menn að fá og hvenær ætli þeir verði dæmdir ?

Sævar Einarsson, 4.11.2008 kl. 10:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband