Innihaldslaus "eftirá" pólitík

Ísland átti "þess vegna" að segja sig úr NATÓ, segir Guðni Ágústsson......... NÚNA, segir hann það! Tell me another one! Samhengislaus kveðskapur og innihaldslaus eftirá pólitík , sem hljómar úr gömlum tíma og frá þreyttum og úr sér gengnum stjórnmálamanni.
mbl.is Hefði jafnvel átt að segja Ísland úr NATÓ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sjaldan hefur manni orðið jafn óglatt af moggatetri og í morgun, þegar maður las annars vegar "viðtal" Kolbrúnar Bergþórsd. við Guðna græna og svo sjálfshól Þorgeirs forstjóra Lífeyrissjóðs VR. Á satt að segja engin orð. Verð bara að segja eins og er, að maður skilur ekki hversu siðblint þetta framsóknarfólk (ef hægt er að kalla þetta fólk) getur verið, sama fólkið og ber fulla ábyrgð á einkavinavæðingu bankanna og öllu svindli og svínaríi sem því fylgdi, þar með að koma sér hjá að setja viðhlítandi aðhaldsreglur og koma á eftirliti með slíkri starfsemi, svona sambærilegt og gerist í siðuðum samfélögum (sem Ísland er alls ekki).  

Áhyggjufullur (IP-tala skráð) 13.12.2008 kl. 12:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband