Hanaslagur Davíðs og Ólafs Ragnars

Þetta er líklega málið í hnotskurn: Davíð versus Ólafur Ragnar. Ólafur Ragnar versus Davíð. Báðir með puttana í því sem þeim kemur ekkert við. Og ríkisstjórn Íslands lætur þetta yfir sig ganga og virðist ekkert ráða við þessa menn. Þessir menn mega hata hvorn annan mín vegna og djúpt virðist það hatur vera, en að þeir komist upp með þennan hanaslag, íslensku þjóðinni til óþurftar á allan hátt, er náttúrulega bara hneyksli. Það verður að gera báðum þessum mönnum það ljóst í eitt skipti fyrir öll, að þeir eru ekki í pólitík og eru ekki hærra settir en ríkisstjórn Íslands, þó þeir haldi það sjálfir.
mbl.is Skapstóri forsetinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Það er algjörlega óskiljanlegt hvað stór hluti þjóðarinnar er hrifið af þessum mönnum og í ljósi þess ekkert skrítið hvernig er komið fyrir þjóðinni.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 11.2.2009 kl. 11:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband