Kollurinn tómi

Það kæmi mér ekki á óvart ef Bretarnir yrðu á undan að sakfella menn fyrir fjárglæpi í bankakerfinu. Íslensk stjórnvöld draga lappirnar og eru aðallega í því að koma fram með heimskulegum hætti, sbr. útbrot aðstoðarmanns forsætisráðherra á dögunum. Íslendingar geta ekki tekið á eigin málum. Spillingin er of víðtæk og tengslin of mikil. Og gleymum því aldrei að það eru ÍSLENDINGAR sem settu landið á höfuðið og eru um það bil að leggja það í rúst. Hvar er kjarkurinn, nýsköpunin og framtíðarsýnin? Ekki í kollinum á ráðamönnum þjóðarinnar, svo mikið er víst.
mbl.is Rannsaka íslensku bankana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þettra er nú ekki rétt hjá þér Bergur.  Árni Þór Árnason félagsmálaráðherra er að fara að ná í skottið á fjárglæframönnum í hópi öryrkja og atvinnulausra og taka af þeim óréttmætar bætur.  Hann segir mikið um glæpi í hópi styrkþega.

Gísli Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 5.8.2009 kl. 11:12

2 Smámynd: Ragnar Borgþórs

Gísli flísasafnari, það er rétt að áður nefndur Árni er að skera upp her ör gegn bótaþegum en þetta er nú einu sinni þjóðaríþrótt íslendinga að féfleta náungann.

Ég þekki mörg dæmi um misnotkun en kæri mig ekki um að bendla mig við ábendingar því kerfið heldur hlífðarskyldi yfir þessu pakki.

En byrjum á þeim stóru !

Ragnar Borgþórs, 5.8.2009 kl. 11:35

3 Smámynd: Þorri Almennings Forni Loftski

Árni Páll Árnason heitir þessi krossfari réttlætisins

Þorri Almennings Forni Loftski, 5.8.2009 kl. 15:43

4 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Til hvers var verið að setja nefnd í málefni lífeyrisþega þegar álit hennar hefur svo ekkert gildi´voru kanski lífeyrisþegar látnir borga launahækkanirnar hjá þeim sem voru bara með tvö hundruð þúsund á mánuði, kanski Árni Páll Árnason Krossfari RÉTTLÆTIS!!! svari því af hverju ráðist var á lífeyrisþega er það kanski vegna þess að þeyr eru varnarlausir ég bara spyr

Bláskjár

Eyjólfur G Svavarsson, 6.8.2009 kl. 13:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband