Aumingja maðurinn

Þarf blessaður maðurinn að standa skil á því sem hann er í persónulegum ábyrgðum fyrir? Ja hérna! Ég er svo hissa. Ég sem hélt að þetta væri bara eitt pennastrik fyrir menn eins og Magnús og málið dautt. Bara að hann missi nú ekki þyrluna. Maðurinn þarf að komast leiðar sinnar fljótt og vel milli lánastofnana til að afskrifa skuldir. Annað er ekki manninum sæmandi.
mbl.is Gamli Landsbankinn afskrifar skuldir Magnúsar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Sveinsson

Já það er hart gengið að þessum verslings pilti sem ekki á til hnífs og skeiða

Jón Sveinsson, 18.8.2009 kl. 15:25

2 Smámynd: Þorri Almennings Forni Loftski

Já, það er mikil ábyrgð og álag sem fylgir því að fá svona mikið lánað og standa svo í að fá það afskrifað í þokkabót.

Þorri Almennings Forni Loftski, 18.8.2009 kl. 17:34

3 Smámynd: SeeingRed

Væri ferlegt ef að hann missti þyrluna mannstráið og lendi janvel á vonarvöl, það verður að gefa honum enn meira eftir greyinu, gengur ekki að menn sem fyrrum þóttust miklir gangi um með betlistaf snapandi sér aur fyrir eldsneyti á farartækið.

SeeingRed, 18.8.2009 kl. 20:20

4 Smámynd:

, 18.8.2009 kl. 23:52

5 Smámynd: Þorri Almennings Forni Loftski

Það er dýrt að reka svona þyrlu

Þorri Almennings Forni Loftski, 19.8.2009 kl. 02:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband