Kúkakolkrabbismi.... eina ferðina enn

Það er þá komið á daginn sem ég var að ýja að í morgun. Klíka innan Sjálfstæðisflokksins  teflir fram einum aðalleikarunum í íslenska efnahagshruninu, fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokksins sem ritstjóra blaðsins. Með Harald Johannessen sem kylfusvein. Ísland breytist lítið. Sjálfstæðisflokkurinn stal fiskinum frá þjóðinni með dyggri aðstoð Framsóknarmanna......Sjálfstæðisflokkurinn stóð að helmingaskipta leiðinni í sölu bankanna með Framsókn... nánast stuldur frá þjóðinni...... Sjálfstæðisflokkurinn setti leikreglurnar sem bankarnir störfuðu eftir fram að hruni........ Sjálfstæðismenn eiga Morgunblaðið. Eigendur eiga eftir að ræða við ritstjóra um stefnuna á blaðinu (Hallgrímur Magnússon í Kastljósi rétt áðan). Er það allt sjálfstæðið sem ritstjórnin og blaðamenn hafa? Þetta er bara kúkakolkrabbismi eina ferðina enn... einfalt mál.  Hevítis fokking fokk!
mbl.is Davíð og Haraldur ritstjórar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Birgisson

Ögrandi þessir menn. Hvernig var með Óskar Magnússon "meintan" eiganda Moggans. Gleymdi hann ekki að borga skatt af einhverjum 120 millum fyrir nokkrum árum? Björguðu fyrningarreglur? Svipað eins og venjulegir menn á venjulegu kaupi "gleymi" að borga skattinn sinn í 25 ár, aldarfjórðung. Kannski hæfir skel tranti, þegar saman koma Óskar og Davíð. En langt er til seilst.

Björn Birgisson, 24.9.2009 kl. 20:55

2 identicon

Framsóknarflokkurinn bjó til fiskinn í sjónum og mátti því ráðstafa honum eins og hann vildi. Og það var enginn annar en Framsóknarflokkurinn sem fann upp lambakjötið -  bara til að halda því til haga.

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 24.9.2009 kl. 23:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband