Látið Polanski lausan

Þrjátíu og eins árs gamalt mál leiðir til handtöku Roman Polanski. Þetta er fáránlegt en í stíl við margt sem bandarísk stjórnvöld geta tekið upp á. Hvernig var með Chaplin? Hvernig var með Lennon? Þeir virðast ekki þola mikla gagnrýni vestra. Látið Polanski lausan strax. Hann hefur ekkert í fangelsi að gera. Lofið honum að vinna vinnuna sína.
mbl.is Ætla að óska eftir lausn Polanskis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þetta snýst reyndar ekki um gagnrýni og er ekki sambærilegt við Chaplin eða Lennon. Þetta er um óumdeilt kynferðisbrot gegn barni. Hins vegar hefur þolandinn fyrir löngu fyrirgefið Polanski og mér finnst að það eigi að hafa sitt að segja. En menn eiga að vera jafnir fyrir lögunum og ekki njóta - eða gjalda -frægðar og frama.

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.9.2009 kl. 20:28

2 identicon

Það eru ekki bandaríkin sem eru að elta karlinn uppi heldur komma og hippabælið  Kalifornia.

LS.

LS (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 20:42

3 identicon

Hann er náttúrulega bara barna perri - stúlkan var þrettán ára - og svona brotum á ekki að sleppa jafnvel þó um sé að ræða frægan einstakling. Einnig fynnst mér þetta algjör hræstni í pólverjum að nokkrum dögum eftir lög um geldingu kynferðisbrotamanna sé farið fram á að hann sé náðaður

G (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 20:46

4 identicon

Já, já, sleppum bara karlgreyinu. Hann gerði nú svo sem ekkert af sér að ráði. Hann fyllti bara þrettán ára stelpuskjátu fulla af eiturlyfjum og nauðgaði henni svo. Já það er alveg í stíl við Bandaríkin að loka glæpamenn inni öfugt við Ísland þar sem þeir mæta í smá viðtal við yfirvöld og er svo sleppt.

Þér finnst þetta kannski í lagi þar sem maðurinn er skráður sem lystamaður?

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 20:58

5 Smámynd: Kristinn Svanur Jónsson

Er ekki í lagi... maðurinn nauðgaði barn!!!

Kristinn Svanur Jónsson, 27.9.2009 kl. 21:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband