Færsluflokkur: Bloggar

Feldskerinn góður

Feldskerinn góður ........ eins og ævinlega. Hann á skilið hrós og það fær hann frá mér. Vonandi verður húseigandi sama sinnis. Þá fær hann hrós líka.
mbl.is Eggert feldskeri og hústökufólkið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Renna nú á mig steingrímur tvær......

Renna nú á mig steingrímur tvær.... ef ekki fleiri. Heilagar hallelúja sósur hylja minn íslenska hádegisfisk. Þistilfjarðarhjartað slær hratt en óreglulega. Ég er að hugsa um að sleppa bananasplittinu í eftirrétt.
mbl.is Vill ekki stríð við aðrar þjóðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvatvísir Íslendingar

Íslendingar eru hvatvísir og nú á að fara að setja fyrirvara og jafnvel semja upp á nýtt og draga þar með í land með fyrri ákvarðanir "stjórnvalda". Ég held að sé nokk sama hvað verður.... Íslendingar eru dæmdir til fátæktar í langan tíma. Menn muna sækja í auðlindir okkar og erfitt verður að standa á móti þegar þjóðinni vantar mat. Vantar mat. En hvernig væri að berjast til síðasta manns? Það væri þá ekki í fyrsta skipti sem þjóðin gerði það.
mbl.is „Það er búið að semja!“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

The Pot and the Pan Revoulution is over

Ég spái því að þarna megi greina upphaf þeirrar byltingar sem gerð verður í haust eða vetur. Ennfremur má hér greina endalok Búsáhaldabyltingarinnar (The Pot and the Pan Revoulution). Og jafnvel endalok The Pot and the Pan Party. Það er alþekkt í mannkynssögunni að byltingarbörn verði mjög svo ósammála um, hvernig "byltingu" skuli framhaldið og oftar en ekki borist á banaspjótum. Þegar börnin finna lyktina af valdinu og auðnum...... ja þá getur allt gerst. Ég ætla ekki að hringja í Vikuna vegna spádóms míns.... bara svo það sé á hreinu.
mbl.is Enginn þingmaður mætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnús Geir

Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri hefur sýnt það og sannað að hann kann að laða fólk að leikhúsinu. Ég hef hrósað honum áður á blogginu og læt þetta nægja að sinni.
mbl.is Metaðsókn í Borgarleikhúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fullt af marklausum plöggum

Eru ekki flest plögg í þessu þjóðfélagi að verða marklaus?? Ég fæ ekki betur séð. Stjórnvöld, bankar,tryggingafélög og fleiri velta auknum kostnaði sínum beint út í verðlagið og þó þrotabú bankanna fái eftirgjöf frá sínum lánadrottnum, þá fær íslensk alþýða ekki að njóta þess. Hún skal borga allt að fullu og vel ríflega það. Þetta getur bara endað á einn veg með sama áframhaldi: Illa.
mbl.is Sáttmálinn marklaust plagg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Taktu pening.......

Taktu pening út úr bankanum! Það gæti bjargað lífi þínu!
mbl.is Pissaðu í sturtunni!
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætluðu þeir að kaupa Alþingi?

Kaupþing stofnar fyrirtæki. Kaupþing skráir!! síðan þessi fyrirtæki á prívataðila!! Kaupþing lánar síðan þessum fyrirtækjum stórfé... fúlgur.... þó það sé óhagstætt fyrir bankann!! Tekið skal fram að lántakendur þessir áttu stóra hluti í Kaupþingi. Er ekki allt í lagi heima hjá ykkur!!! Ef fréttin er rétt, er hér um stórglæp að ræða..... en kannski ekki jafn stóran glæp og þegar kjötlærinu var stolið hér um árið..... tengsl í hærri þrepum þjóðfélagsins eru býsna sterk. Kannski var lokatakmark Kaupþings að "kaupa" Alþingi....sbr. einkunnarorðin í boðhætti: Kaup þing. Hvað veit ég almúgamaðurinn.
mbl.is Grunur um misnotkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bíddu..... hver stjórnar Kaupþingi?

Bíddu....... hver stjórnar Kaupþingi?? Er það stjórn bankans... bankastjórinn... eða skilanefndin?? Detti nú af mér allar dauðar lýs!  Hvers konar endemis dæmalaust rugl er þetta? Er þetta fólk ekki í lagi? Skytturnar þrjár? Ég bara spyr?
mbl.is Stjórn Kaupþings harmar skaðann af lögbanninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ræðst NATO á "lille Island"?

Er ekki bara kominn tími til að NATO styrki varnirnar á Íslandi til að verjast árásum frænd- og vinaþjóða okkar Íslendinga? Það sannast enn einu sinni: Frændur eru frændum verstir. Ber er hver að baki nema sér bróður eigi. Það er bara rómantík. Kannski er Anders Fogh of mikill "vinur" okkar til að gera eitthvað í málinu. Kannski ræðst NATO bara á "lille Island"? Maður verður að fara að huga að heykvíslunum.
mbl.is Herlið NATO eflt í Afganistan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband