Færsluflokkur: Bloggar

Aldrei aftur Ísland

Hvað eiga Kafka og Kundera.... og fleiri að gera??  Nýbúið að búa til sýslu sem þeir ágætu menn hugðust búa í um ókomna tíð? Svo verður bara Bankasýsla ríkisins.... lögð niður..... í síðasta lagi eftir 5 ár!! ER það svona sem við Íslendingar viljum taka á listaspírum nútíðar og framtíðar??  Allt í lagi að ginna saklausar erlendar listaspírur til að búsetja sig í Bankasýslu Ríkisins.... og þurrka svo þá sýslu út af Íslandskortinu??? Það er ekki nema von að alvöru spírur... velji sér annan búsetukost....... það er greinilega ekkert að marka þessa......... æ hvað heita þeir aftur........... jú.... Íslendinga.
mbl.is Bankar einkavæddir innan 5 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjúpid mí

Sama gamla sagan. Var einhver að tala um "Nýtt Ísland"? Ég hef ekki orðið var við það. Sjúpid mí.
mbl.is Samstarfið heldur í Kópavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kafka og Kundera fluttir til Íslands

Nú eru Kafka og Kundera fluttir til Íslands og búa í Bankasýslu Ríkisins. Við Íslendingar bjóðum þá velkomna. Það væri ekki ónýtt að fá fleiri svona kalíber í listum til landsins. Það myndi létta róðurinn..... lífsróðurinn.
mbl.is Kafka og Kundera í Bankasýslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamanið kárnar

Gamanið kárnar með hverjum degi sem líður....... á Íslandi. Ja hérna.
mbl.is Ók á hurðir slökkviliðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar óttast hákarla

Á Íslandi tíðkast það ekki að hákörlum sé vikið frá störfum. Einhver ótti er í þjóðinni gagnvart hákörlum. Að vísu hefur það gerst að hákarlar hafa kosið að víkja sjálfir..... en þá einungis um stundarsakir. Og þá alltaf á eigin forsendum....... en ekki hinnar íslensku þjóðar. Svona er Ísland í dag..... og hefur verið lengi.
mbl.is Gunnar fer í leyfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er fæddur í Bankasýslu Ríkisins

Góðan daginn mín elskulega þjóð. Ég er útrásarvíkingur og á allar mínar ættir að rekja til Bankasýslu Ríkisins........... eða þannig......
mbl.is Stofna Bankasýslu ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guð minn góður.....

Góði Guð: Forðaðu okkur frá... deilum... ótta.. og vélsögum. Í jesú nafni. Amen.
mbl.is Deilur og ótti við vélsög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fifty fifty

Þó mér komi málið í raun og veru ekkert við..... þá veit ég þó.... að það er ekki öllum gefið að ræða við Framsóknarflokkinn. Nema...... kannski helst Sjálfstæðismönnum.. Það er svo skrýtið að þessir tveir hópar, virðast kunna á klæki hvors annars. SÍS plús Kolkrabbi... = Gamla Ísland. Eins og vel gefnir menn sögðu í Kaupfélaginu í den. Og eins og það heitir víst á nútíma færeysku: Let's rule over Iceland together. Það getur einfaldlega ekki klikkað. Fifty fifty...... Málið dautt. Verst að Tíminn er hættur að koma út. Og Morgunblaðið í dulargervi. Það er gaman á grímuböllum..... a.m.k.  þangað til grímurnar eru teknar niður. Þá vill oftar en ekki kárna gamanið...... but.... who gives a shit???
mbl.is Falið að ræða við Framsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fleiri smásögur á síður Morgunblaðsins

Mér finnst gott að smásögur, sem áður birtust nær eingöngu í Lesbók Morgunblaðsins, séu farnar að birtast í æ ríkara mæli í hinu svokallaða "Blaði Dagsins", á hinum ýmsu síðum þess. Sjáanlegar fyrir hina íslensku þjóð alla, en ekki bara fyrir þann hluta hennar, sem vill helst ekki tala um sögur, þaðan af síður lesa þær, ef þær hafa ekki birst í Lesbók Morgunblaðsins. Sitt sýnist hverjum um flestar sögur en þessi er góð.
mbl.is Skip og veiðiheimildir í nýtt félag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opið bréf til Steingríms J. Sigfússonar

Steingrímur: Hvenær kemur pakkinn fyrir 2009? Og..... hvenær kemur STÓRA ÁÆTLUNIN?     Þú varst að tala um hvort tveggja í fjölmiðlum í dag. Hvenær megum við taka utan af pakkanum? Og hvenær getum við lagt plön fyrir okkur sjálf um framtíðina? Herra Fjármálaráðherra? Are you there??

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband