Færsluflokkur: Bloggar

Liverpool og Desember

Ekki sá ég leikinn, fór heldur að sjá Desember Hilmars Oddssonar... bara alveg stórfín mynd.... en eftir því sem mér er sagt var vafasamt að dæma víti á Birmingham. Liverpool er einhvern veginn að leka niður. Púlarar ganga niðurlútir þessa dagana.... og skal engan undra.
mbl.is Liverpool með jafntefli við Birmingham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jahá..........

Nú fer að hitna í kolunum. En ein spurning: Hvað er stór hluti þjóðarinnar með meira en 500 þús á mánuði? Gott væri að vita það. 
mbl.is 47% skattur á launatekjur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram strákar!

Þetta er náttúrulega bara alveg frábært. Listsköpun inni á Hrauninu hlýtur að gefa viðkomandi meiri gleði en að framleiða eitthvað á færibandi. Meira svona. Það býr örugglega listamaður í mörgum fanganum. Áfram strákar og áfram Margrét.
mbl.is Smíðar skartið á Hrauninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gefiði mér banana

Það er bara sisona! Ætli það séu ekki fleiri svona dæmi? Hvernig í ósköpunum er þetta hægt? Er búið að eyða gögnunum? Þetta hlýtur að varða þjóðina beint þar sem hún á bankann. Gefiði mér banana.... please...
mbl.is Kroll rannsakar Glitni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Merkilegt?

Er þetta eitthvað merkilegt? Það er fullt af samkynhneigðu fólki sem starfar hjá kirkjum heimsins. Líka í Svíþjóð.
mbl.is Lesbía vígð biskup
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er nú gott fyrir kerlingu

Það er nú gott að löngunin er til staðar hjá blessuðum kallinum. Hann er þá ekki dauður úr öllum æðum.
mbl.is Wenger: Löngunin er til staðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er hann?

Ég sé ekki manninn á listanum sem tilkynnti um framboð sitt með pomp og prakt á forsíðu Moggans fyrstur manna fyrir margt löngu. Hvar er hann? Fluttur til Noregs?
mbl.is Ásgerður sigraði á Nesinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsóknarmaður stendur við orð sín

Framsóknarmaður stendur við orð sín. Þessi fer í sögubækurnar.
mbl.is Höskuldur stendur við orð sín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður er alveg hlessa

Já... það má nú spyrja sig hvað fjármálastjóri er að borga fyrir með kreditkorti KSÍ á súlustað í Sviss? Eru menn alveg gaga? Eða er þetta The Icelandic model? Einn af aðlinum og forréttindastéttinni? Maður er alveg hlessa.
mbl.is Femínistar segja KSÍ hafa brugðist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krítarkortin með?

Eru krítarkort KSÍ ekki örugglega með?
mbl.is Langt ferðalag til Teheran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband