Þú skilur þetta þegar þú verður stór..... krúttið mitt

Háar eru þessar tölur og lágar. Kvenkyns og karlkyns. Fyrir mestu er þó að blessuð börnin eru undir forsjá. Einhvers. Það er alveg greinilegt að mannskepnan hleypur útundan sér enn . En ekki frá börnunum. Og það er bót í máli. Fyrir börnin. Og líka fyrir afa og ömmu. Og líka fyrir myndaalbúm í stofuskápum, sem eru skoðuð á tyllidögum. Þetta er nú hún mamma þín...... og þarna er pabbi þinn... þegar þú varst lítill.... þú skilur þetta þegar þú verður stór... krúttið mitt. Komdu til ömmu. Amma skal baka pönnuköku.
mbl.is 515 lögskilnaðir og 603 sambúðarslit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fallegur texti... =)

Tinna (IP-tala skráð) 10.6.2008 kl. 10:12

2 Smámynd: Bergur Thorberg

Það eru ekki allir sem kunna að meta svona texta. Kannski sem betur fer. Takk.

Bergur Thorberg, 10.6.2008 kl. 10:20

3 identicon

Er bara fólk ekki miskilið...?

Toggi Óla (IP-tala skráð) 10.6.2008 kl. 10:28

4 Smámynd: Bergur Thorberg

Þú segir nokkuð, Toggi

Bergur Thorberg, 10.6.2008 kl. 10:29

5 identicon

Það getur verið að fólk sé misskilið og því fráskilið.

Kolla Sig (IP-tala skráð) 10.6.2008 kl. 12:29

6 Smámynd: Bergur Thorberg

Skiljiði?

Bergur Thorberg, 10.6.2008 kl. 12:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband