Sveitaballa-vestra réttarkerfi

Réttarkerfið á Íslandi tekur ekki á ofbeldi. Það er staðreynd. Maður skilur ekki þennan sveitaballa-vestra hugsunarhátt. Menn eru hálf drepnir, konum nauðgað og réttarkerfið horfir í aðra átt, aðallega í því  dæma fyrir auðgunarbrot.... líklega gamall arfur frá einveldi.... allt skal gert til að passa upp á peninga yfirstéttarinnar.....nema kannski núna... þegar yfirstéttin hefur stolið frá almúganum. Þá verður örugglega dæmt vægt... ef nokkuð. Svo liggja menn í blóði sínu úti um allan bæ..... það virðist bara vera smámál. Sveiattann!! Þvílíkt þjóðfélag.
mbl.is Margir glæpahópar hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leeds hefði átt að vinna

Leeds hefði átt að vinna þennan leik. Punktum basta.
mbl.is Liverpool marði Leeds á Elland Road
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsætisráðherra skipar sjálfan sig í sérstaka ráðherranefnd til að fjalla um efnahagsmál?? Hvað er í gangi?

Þetta er nú furðulegasta frétt dagsins! Forsætisráðherra skipar sjálfan sig í sérstaka ráðherranefnd um efnahagsmál, ásamt efnahags- og viðskiptaráðherra og fjármálaráðherra. Mun hún fjalla reglulega um atvinnumál og stöðu heimilanna. Hún á að samræma aðgerðir í efnahagsmálum og fjalla um samstarfið við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn o.s. frv. o.s. frv. Hvað er í gangi hér? Eru þessi mál ekki nú þegar á könnu fyrr talinna ráðuneyta? Hefur ekkert verið gert? Þurfti að stofna nefnd um þessi mál og önnur? Hvers konar skrípaleikur er þetta? Ef þetta er það sem ríkisstjórnin er að bauka við... ja þá er eitthvað mikið að. Ég botna ekkert í þessari frétt.
mbl.is Ráðherranefnd um efnahagsmál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara frábært! Áfram með smjörið

Þetta er lausnin á efnahagsvanda þjóðarinnar. Það býr geysilega mikið hugvit í þjóðinni og möguleikar til að koma því í peninga eru fyrir hendi. Til þess að það sé hægt þurfa stjórnvöld og einkaaðilar að leggjast á eitt og styðja við bakið á íslensku hugviti, í hvaða formi sem það birtist, og kynna það á erlendum vettvangi, í miklu ríkara mæli en gert hefur verið, og á markvissari hátt. Ef það gerist, þá mun það skila sér margfalt til baka inn í hið íslenska þjóðfélag. Þetta á við um vísindi, listir og yfirleitt allt sem mannshugurinn fæst við. Áfram Ísland.
mbl.is „Svimandi háar fjárhæðir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingmaður vill stilla saman strengi. En hvað það er fallegt og ljóðrænt.

Nei sko! Nú er komin ljóðræna í pólitíkina! Nú á kannski bara að syngja sig í gegnum vandamálin sem blasa við. Og þingmaður á von á að skuldamál heimilanna verði aðalmálið? Þetta kalla ég mikla skarpskyggni hjá þingmanninum. Við skulum bara vona að hann haldi lagi og láti ekki slá sig út af laginu. Og að undirleikarinn slái ekki feilnótu. Það er nóg komið af þeim.
mbl.is Stilla saman strengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menn fá "bónus" fyrir að "haga" sér illa

Við skulum gefa því "gaum" að þessir menn með geisla-"baug" fá "bónus" fyrir að "haga" sér ósæmilega. "10-11" milljarða minnst.
mbl.is Söluverð til kaupa bréfa af eigendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leeds getur unnið Liverpool

Nú er tækifæri fyrir Leedsara að fá uppreisn  æru. Ég heiti á þá að vinna Púlarana og held að þeim gæti tekist það. Þeir eiga það skilið eftir hrakfarir síðustu ára. Púlarar eru ekkert sérstakir þessa dagana.
mbl.is Benítez reiknar með erfiðum leik á Elland Road
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Voðalega gaman að fara úr að neðan. Annar á skrifstofunni........ hinn úti á götu....

Margt sameiginlegt með þeim kollegum: Voðalega gaman hjá þeim að fara úr að neðan. Annar á skrifstofunni, hinn úti á götu. Sækja pitzu!! Tell me another one.
mbl.is Fáklæddur Jeltsín á rölti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klara gæti kennt okkur margt

Íslenska þjóðin ætti að gera lífsspeki Klöru að sinni. Hætta að kaupa og kaupa og eiga ekki fyrir hlutunum. Fólk fær lánað og lánað og á svo ekki pening til að borga og bankarnir djöflast í fólki. Stjórnvöld hefðu betur leitað til Klöru fyrir hrun...... og það er kannski ekki of seint. Klara getur kennt okkur margt. Svo mikið er víst. Til hamingju með daginn Klara.
mbl.is Ég átti hamingjusamt líf og skuldaði aldrei
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Franskur koss yfir Ermasundið

Ja... flest dunda menn sér nú við í ellinni, ég segi nú ekki meir en það. Kannski þarf blessaður gamli maðurinn að drýgja ellilífeyrinn, nú þegar fjármálakreppan ríður yfir heimsbyggðina. Ja eða lífga upp á ástarlífið. Franskur koss yfir Ermasundið... hvorki meira né minna. Ja hérna.
mbl.is Prinsessan og forsetinn - sönn eða login ástarsaga?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er forseti Íslands rétti maðurinn?

Þá vitum við það. Forseti Íslands mun flytja lokaræðuna á alþjóðlegu málþingi Louis Blouin stofnunarinnar um lærdómana sem má draga af fjármálakreppunni og hvernig byggja má upp hagsæld að nýju, á traustan og öruggan hátt. Er hann rétti maðurinn til þess? Ég bara svona spyr?
mbl.is Forsetahjónin í Bandaríkjaheimsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með svínin?

En hvernig er með blessuð svínin? Fá þau ekki neitt? Svona er farið með málleysingjana sem geta ekki tjáð sig. Segin saga.
mbl.is Búið að forgangsraða vegna bóluefnis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varnarkerfi gegn fjármálahryðjuverkamönnum

Hvernig væri að koma upp varnarkerfi á Íslandi gegn fjármálahryðjuverkamönnum? Ekki sýnist mér veita af.
mbl.is Stjórnast ekki af Rússum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skandall!

Alveg týpiskt! Dómarinn bíður með að flauta þar til Man U gerir mark. Hneyksli eins og svo oft áður. Komið langt fram yfir tímann. Fergusonhræðslan enn og aftur. Skandall.
mbl.is Owen með sigurmark í sjö marka Manchesterslag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfangasigur fyrir Jón Jósef og þjóðina

Ríkisskattstjóri er maður að meiri með því að biðjast afsökunar. Smá glæta í embættismannakerfinu. Vonandi fær Jón Jósef að starfrækja sitt fyrirtæki á eðlilegan hátt í framtíðinni og auka þar með gagnsæi upplýsinga hér á landi, en mér segir svo hugur að það muni nú heyrast í einhverjum síðar, sem ekki hugnast það sem hann er að gera. Samtvinning spillingar í íslensku þjóðfélagi er mikil, því miður. Áfram Jón Jósef.
mbl.is Ríkisskattstjóri biðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Órólega deildin væri nærtækari

Hvernig væri að stofna "órólegu deildina" fyrir spillta stjórnmálamenn og embættismenn? Og skutla fjárglæframönnunum inn á hana líka? Þar myndi skrattinn hitta ömmu sína á lokaðri deild og við fengjum að vera í friði. Þar gætu þeir vælt í friði og borið saman bankabækurnar sínar  og skolað af sér syndir sínar á milli mála. Þeir gætu líka stofnað Grátkór, sem hefði það á efnisskránni að syngja sig frá skömminni.
mbl.is Sérdeild er nærtækari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþingishúsið verði fangelsi

Er ekki tilvalið að tæma Alþingishúsið og innrétta sem fangelsi? Ráða svo hluta alþingismanna sem fangaverði, þ.e.a.s. þá sem uppfylla kröfur um menntun til starfans? Þeir gætu þá loksins gert eitthvað gagn? Eða hvað? Tvö fangelsi í miðbæ Reykjavíkur í stíl. Verður ekki betra. Spurning um stjórnarráðið líka?
mbl.is Auglýsir eftir húsnæði undir fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Algjör sveppur

Í næturhúmi nakinn birtist

nýbúinn að klæðast úr.

Í versluninni að því er virtist

ekki veit'af góðum lúr.


mbl.is Nakinn og til vandræða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur er sposknorskur

Það er sama hvert litið er í íslensku efnahagsrústunum..... alls staðar sér maður Norðmenn. Enda Steingrímur sposknorskur.
mbl.is Røsjø eignast hlut í MP Banka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað gerir maður núna?

Hvað á maður nú að gera sér til dundurs í skammdeginu?......... Það er stór spurning.
mbl.is Síðasta Leiðarljósið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband