Skilja þeir nokkuð ensku?

Ekki veit ég hvernig er með Össur Skarphéðinsson en er ekki bara málið að íslenskir ráðamenn skilja  ekki ensku, hvorki í töluðu né rituðu máli og hafa ekki gert í áraraðir? Ég bara spyr?
mbl.is „Mér er sagt það sé til“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki allt í lagi?

Þetta er nú til að kóróna allt. Þeir eru ekki búnir að borga bankann sem setti okkur öll á hausinn??? Ha?? Er ekki allt í lagi? Það sem hefur viðgengist í þessu þjóðfélagi er með þvílíkum ólíkindum að ma bara............
mbl.is Varar við borgarastyrjöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært

Barasta alveg frábært framtak. Á örugglega eftir að skila miklu til Feneyjaborgar. Eitthvað fyrir Íslendinga að skoða?
mbl.is Feneyjar einn stór heitur reitur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlustum

Hlustum........... það er náttúrulega hægt að búa til eitthvað nýtt.... úr íslensku hugviti..... en þessi frétt boðar ekki gott. Helmingur starfsmanna hverfur á nokkrum mánuðum? Hvað erum við Íslendingar að gera og hvað ætlum við að gera? Þýðir nokkuð lengur að rölta í átt að Alþingishúsinu og vera þar með einhvern kjaft? Eru engin önnur úrræði í stöðunni? Heimskur ég spyr.
mbl.is „Það er ekkert að fara að breytast"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir þurfa einhvern tíma að fara í frí

Gott og vel. Það þurfa allir að fara í frí. Meira að segja mjög gott að umferðin skuli vera innanlands. En þetta eru margir bílar og eitthvað hefur bensínið hækkað.... ásamt ýmsu öðru...........  og svo getur maður velt fyrir sér....... hversu margir bílaeigendur..... eiga sína bíla..... og sína sumarbústaði   og..... sín hús..... og híbýli...... það er önnur saga.... sem verður ekki sögð til að telja kjark úr þjóðinni okkar..... heldur þvert á móti..... og jafnvel á hvolfi. En leiðin liggur út á land...... greinilega.... samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar.
mbl.is Tugir þúsunda á vegunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Danskt framhald

Fáum við í framhaldinu sögu Íslendinga í Danmörku á fyrstu sex áratugum síðustu aldar? Og áhrif Íslendinga á danska menningu og sögu þann tíma? Í boði Dana?
mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar við lendum í sprungum

Guði sé lof að drengnum var bjargað. Og Guði sé lof fyrir íslenskt atgervi.... sem tvínónar ekki við hlutina... nú þarf að gera þetta..... og þá er það gert.... stundum.. nánast samstundis... stundum aðeins síðar eins og gengur... en það er gert....og.. sum okkar gleyma því.. stundum... að það er þetta.... sem líf okkar veltur á. Þökk sé þeim eru í viðbragðsstöðu. Þegar við lendum í sprungum.
mbl.is Dreng bjargað úr jökulsprungu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðir útrásarvíkingar

Þessir menn eru hinir sönnu góðu útrásarvíkingar. Við eigum nokkra góða td. í íþróttum og listum. Þessir ágætu menn eru meðal þeirra.
mbl.is Höfðingjar golfa í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrollur og 365 hf.

Viss hópur Íslendinga gæti hagnast vel á því að kenna útlendingum hvernig á selja allar eignir út úr fyrirtæki, gera það verðlaust, skilja bara skuldirnar eftir og biðja síðan um gjaldþrot. Að öðru leyti fer um mig hrollur þegar ég heyri minnst á 365..... en það er önnur saga og kostuleg.


mbl.is Íslensk afþreying gjaldþrota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lífgaður við??

Sumir fréttamiðlar segja að hann hafi verið lífgaður við?????
mbl.is Michael Jackson er látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jörðin skelfur

Funduð þíð kippinn. Jörðin skelfur.

Aldrei aftur Ísland

Hvað eiga Kafka og Kundera.... og fleiri að gera??  Nýbúið að búa til sýslu sem þeir ágætu menn hugðust búa í um ókomna tíð? Svo verður bara Bankasýsla ríkisins.... lögð niður..... í síðasta lagi eftir 5 ár!! ER það svona sem við Íslendingar viljum taka á listaspírum nútíðar og framtíðar??  Allt í lagi að ginna saklausar erlendar listaspírur til að búsetja sig í Bankasýslu Ríkisins.... og þurrka svo þá sýslu út af Íslandskortinu??? Það er ekki nema von að alvöru spírur... velji sér annan búsetukost....... það er greinilega ekkert að marka þessa......... æ hvað heita þeir aftur........... jú.... Íslendinga.
mbl.is Bankar einkavæddir innan 5 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjúpid mí

Sama gamla sagan. Var einhver að tala um "Nýtt Ísland"? Ég hef ekki orðið var við það. Sjúpid mí.
mbl.is Samstarfið heldur í Kópavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kafka og Kundera fluttir til Íslands

Nú eru Kafka og Kundera fluttir til Íslands og búa í Bankasýslu Ríkisins. Við Íslendingar bjóðum þá velkomna. Það væri ekki ónýtt að fá fleiri svona kalíber í listum til landsins. Það myndi létta róðurinn..... lífsróðurinn.
mbl.is Kafka og Kundera í Bankasýslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamanið kárnar

Gamanið kárnar með hverjum degi sem líður....... á Íslandi. Ja hérna.
mbl.is Ók á hurðir slökkviliðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar óttast hákarla

Á Íslandi tíðkast það ekki að hákörlum sé vikið frá störfum. Einhver ótti er í þjóðinni gagnvart hákörlum. Að vísu hefur það gerst að hákarlar hafa kosið að víkja sjálfir..... en þá einungis um stundarsakir. Og þá alltaf á eigin forsendum....... en ekki hinnar íslensku þjóðar. Svona er Ísland í dag..... og hefur verið lengi.
mbl.is Gunnar fer í leyfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er fæddur í Bankasýslu Ríkisins

Góðan daginn mín elskulega þjóð. Ég er útrásarvíkingur og á allar mínar ættir að rekja til Bankasýslu Ríkisins........... eða þannig......
mbl.is Stofna Bankasýslu ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guð minn góður.....

Góði Guð: Forðaðu okkur frá... deilum... ótta.. og vélsögum. Í jesú nafni. Amen.
mbl.is Deilur og ótti við vélsög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fifty fifty

Þó mér komi málið í raun og veru ekkert við..... þá veit ég þó.... að það er ekki öllum gefið að ræða við Framsóknarflokkinn. Nema...... kannski helst Sjálfstæðismönnum.. Það er svo skrýtið að þessir tveir hópar, virðast kunna á klæki hvors annars. SÍS plús Kolkrabbi... = Gamla Ísland. Eins og vel gefnir menn sögðu í Kaupfélaginu í den. Og eins og það heitir víst á nútíma færeysku: Let's rule over Iceland together. Það getur einfaldlega ekki klikkað. Fifty fifty...... Málið dautt. Verst að Tíminn er hættur að koma út. Og Morgunblaðið í dulargervi. Það er gaman á grímuböllum..... a.m.k.  þangað til grímurnar eru teknar niður. Þá vill oftar en ekki kárna gamanið...... but.... who gives a shit???
mbl.is Falið að ræða við Framsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fleiri smásögur á síður Morgunblaðsins

Mér finnst gott að smásögur, sem áður birtust nær eingöngu í Lesbók Morgunblaðsins, séu farnar að birtast í æ ríkara mæli í hinu svokallaða "Blaði Dagsins", á hinum ýmsu síðum þess. Sjáanlegar fyrir hina íslensku þjóð alla, en ekki bara fyrir þann hluta hennar, sem vill helst ekki tala um sögur, þaðan af síður lesa þær, ef þær hafa ekki birst í Lesbók Morgunblaðsins. Sitt sýnist hverjum um flestar sögur en þessi er góð.
mbl.is Skip og veiðiheimildir í nýtt félag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband