Opið bréf til Steingríms J. Sigfússonar

Steingrímur: Hvenær kemur pakkinn fyrir 2009? Og..... hvenær kemur STÓRA ÁÆTLUNIN?     Þú varst að tala um hvort tveggja í fjölmiðlum í dag. Hvenær megum við taka utan af pakkanum? Og hvenær getum við lagt plön fyrir okkur sjálf um framtíðina? Herra Fjármálaráðherra? Are you there??

Sagan af Saddam, Jóhannesi skírara og mér

Bergur Thorberg Saddam sagði: Er ekkert í gangi hér? Ja... þá nenni ég ekki að hanga hérna lengur. Minnir svolítið á Jóhannes skírara... höfuðfatið... og hvítasunnuna (jafnvel hvítar dúfur), flögrandi um þegar maður kemst upp fyrir yfirborð ár sem rann fyrir löngu í fjarlægu landi.. . og er litið til himins. Viti menn: Hvítar dúfur. Svífandi milli skýja, á annars svo sólbjörtum degi. Á morgun verður allt hvítþvegið...

Bergur Thorberg
 Bergur Thorberg

Bláþráður á blárri hönd

Bláþræði? Sem ef til vill hangir á blárri hönd? Og hvað hangir svo á bláþræðinum? Eldgömul hreppapólitík? Eða hrossakaup? Spyr fávís maður. Kannski er íslenska glíman svona. Sniðglíma á lofti, hælkrókur eða klofbragð. Steingrímur vann.
mbl.is Viðræðurnar hanga á bláþræði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þurfa kerfiskallar yfirleitt nokkuð sumarfrí? Bragð er af þá barnið Finnur (ekki Ingólfsson)

Enn rísa stjörnur og enn falla stjörnur. Ætlar embættismaðurinn og hinn kjörni þingmaður Sjálfgræðisflokksins ekki að taka sér frí í sumar? Eins og hann þyrfti á að halda. Aumingja drengurinn. Það hefur þótt gott á Íslandi í langa tíð, að vera báðu megin við borðið, helst undir því líka.... svo ekki sé talað um yfirborðið. Fyrrum og núverandi embættismaður RÍkisins hefur talað. Eins og honum virðist vera tamt. Segið þið svo að íslenska þjóðin þurfi ekki á talsmönnum að halda? Nýútskriðnir úr sukkinu,"bjarga þeir landinu", og hamingja þeirra liggur í velferð þjóðarinnar. Hinnar íslensku þjóðar. Sem hefur látið glepjast af fagurgala frjálshyggju manna, sem nú eru orðnir menn með mönnum og virðast greinilega hafa fullnægt öllum sínum persónulegu þörfum... í þágu þjóðar.... sem er búin að berjast í áratugi við að losna undan.... viðlíka þjóðarhaftsmönnum. Sumarið er tíminn fyrir suma menn að taka sér ærlegt frí og þó það teygði sig fram á haustið.... og veturinn og... vorið...og þá er komið annað sumar... til að bretta upp ermar... þ.e.a.s.... ef þessir þjóðþurftarmenn gæfu sér tíma í að losa um ermahnappana, sem virðast gerðir úr gulli og gersemum.. frá gömlum tíma einokunar, en auðvitað í boði banka, sem lengi vel var haldið að væru í eigu hinnar íslensku þjóðar  og auðvitað hefur hinn  sauðsvarti almúgi bara lesið um slíka demanta á bókum. Sumar hverjar þýddar beint úr dönsku... og ef ekki... þá úr amerískum þankagangi hins menntaða manns, sem kallar sig Íslending. Ef það er þetta sem þjóðin vill...... ja þá getur hún sjálfri sér um kennt.

Að lokum: Don't Ask me about Askar. Það er kapítúli út af fyrir sig.


mbl.is Finnst „fráleitt“ að embættismenn fari í frí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamli tíminn er kominn inn á hið nýja Alþingi

Nú skil ég hvers vegna Guðmundur Steingrímsson gekk til liðs við Framsóknarflokkinn. Að hlusta á öfgamenn og gæslumenn gamals tíma á Alþingi Íslendinga í dag...... hver á eftir öðrum opinbera.... þeir sínar kenndir, sem virðast allar hneigjast til: Viðhalds hins gamla tíma.... hagsmunagæslu fyrir fáa útvalda...... endurreisn Kolkrabbans og SÍS og....... og áframhaldandi "ÍSLANDI ALLT", undir yfirskyni frelsis og fagurra fyrirheita. Viljum við það? ...... Þetta er gamla kaupfélagið.... þetta er gamla einokunarverslunin.... þetta er verndarstefna fyrir þá útvöldu (sem mikil hefð er fyrir).... þetta er gamli tíminn í öndunarvél. Gamli tíminn hefur nefnilega allt sitt á hreinu og þeir sem reyna að hrófla við honum.... skulu passa sig og sína... og gamla tímans vegna: Þegar illt er árferðið, megið þið éta það sem úti frýs. Og fólkið sem talar er ungt... á Alþingi... og.. einhver hefði viljað heyra eitthvað annað..... frá ungu og upprennandi fólki, eins og upprennandi  á, á Íslandi, en gamlingjarnir gefa sig ekki..... ættarveldi gefur sig ekki..... kvótakóngar gefa sig ekki.... kóngar gefa sig ekki....  drottningar vilja fá sitt..þú hlýtur að skilja það kæri almúgi.... Oh my god....þú ert ekki almáttugur... það er ég, hinn gamli tími sem er almáttugur.... enda átt þú eftir að finna fyrir því.


mbl.is Veruleikafirrtur grátkór
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Askar Capital.... er það komið í öskustóna?

Hver var aftur að vinna hjá Askar Capital? Þeir eru svo margir að ég man þetta ekki lengur. Getið þið hjálpað mér?
mbl.is Kröfuhafar taka Askar Capital yfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einfalt mál

Elsku Moggi..... takk fyrir svona góðar sögur. Sjáumst í fyrramálið. Bææææææ.........
mbl.is Forðast bað í 35 ár í von um að eignast þá son
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

To do or not to do.... that's not the question to night...is it true? That's the question

Isit true?....... That's the question.
mbl.is Ísland komið áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta mótspil fjölmiðla gegn fordómum?

Nú er orðið í tísku í fjölmiðlum að upplýsa hvort afbrotamenn eru íslenskir eða erlendir. Hér áður fyrr var ekki tekið fram, ef fjallað var um afbrotamenn á Íslandi, hvers lenskir þeir væru. En nú er öldin önnur. Yfirleitt er tekið fram núna hvort er um Íslendinga að ræða eða erlenda ríkisborgara. Spurningin er: Er verið að vernda Íslendinga eða erlenda ríkisborgara? Er um fordóma að ræða? Svari hver fyrir sig.
mbl.is Íslendingar áfram í haldi lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðbjóður

Djöfulsins viðbjóður. Fer þróunaraðstoðin okkar í að styðja svona hryllingsverk?
mbl.is Pygmýum nauðgað í Kongó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ég að missa af einhverju??

Steingrímur Joð og Jón Bjarnason eru Framsóknarmenn. Er ég að missa af einhverju??
mbl.is Ný ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórfrétt

Stórfrétt!!!!!!????
mbl.is Ríkisráðsfundur fráfarandi stjórnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann Nonni Bjarnason

Hver skyldi taka við Atvinnumálaráðuneytinu í fyllingu tímans? Varla Jón Bjarnason????
mbl.is Óbreytt stjórnskipan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ledley King er ekki fyrirliði Tottenham

Ledley King er ekki fyrirliði Tottenham. Robbie Keane er fyrirliði Tottenham. Bara svo það sé á hreinu.
mbl.is Fyrirliði Tottenham handtekinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útikamar

Nýir tímar- gamlir tímar. Bara að setja upp útikamar. Það þótti gott í gamla daga og nú liggur leið okkar Íslendinga hratt til gamalla daga. Segi bara svona.
mbl.is Klósettferðir angra íbúa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna á handklæðinu

Segið þið svo að við eigum ekki myndarlegan forsætisráðherra. Krakkar! Ha?


Góður við börnin sín

Maður verður að vera góður við börnin sín og sjálfan sig..... annað er ekki hægt.....
mbl.is „Kom verulega á óvart“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hundakúnstir

Hundur sýnir sinn innri hund upp við nakið tré.
mbl.is Hundur étur hund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vel upp alinn

Vel upp alinn Eiður. Mörg okkar mættu taka hann okkur til fyrirmyndar. Heppnissigur en glæsilegt eigi að síður.
mbl.is Eiður Smári: Vildi ekki fagna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Út úr torfkofunum

Meirihluti Íslendinga vill út úr torfkofunum...... sem bankarnir eiga hvort eð er.
mbl.is 61,2% vilja aðildarviðræður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband