Þurfa kerfiskallar yfirleitt nokkuð sumarfrí? Bragð er af þá barnið Finnur (ekki Ingólfsson)

Enn rísa stjörnur og enn falla stjörnur. Ætlar embættismaðurinn og hinn kjörni þingmaður Sjálfgræðisflokksins ekki að taka sér frí í sumar? Eins og hann þyrfti á að halda. Aumingja drengurinn. Það hefur þótt gott á Íslandi í langa tíð, að vera báðu megin við borðið, helst undir því líka.... svo ekki sé talað um yfirborðið. Fyrrum og núverandi embættismaður RÍkisins hefur talað. Eins og honum virðist vera tamt. Segið þið svo að íslenska þjóðin þurfi ekki á talsmönnum að halda? Nýútskriðnir úr sukkinu,"bjarga þeir landinu", og hamingja þeirra liggur í velferð þjóðarinnar. Hinnar íslensku þjóðar. Sem hefur látið glepjast af fagurgala frjálshyggju manna, sem nú eru orðnir menn með mönnum og virðast greinilega hafa fullnægt öllum sínum persónulegu þörfum... í þágu þjóðar.... sem er búin að berjast í áratugi við að losna undan.... viðlíka þjóðarhaftsmönnum. Sumarið er tíminn fyrir suma menn að taka sér ærlegt frí og þó það teygði sig fram á haustið.... og veturinn og... vorið...og þá er komið annað sumar... til að bretta upp ermar... þ.e.a.s.... ef þessir þjóðþurftarmenn gæfu sér tíma í að losa um ermahnappana, sem virðast gerðir úr gulli og gersemum.. frá gömlum tíma einokunar, en auðvitað í boði banka, sem lengi vel var haldið að væru í eigu hinnar íslensku þjóðar  og auðvitað hefur hinn  sauðsvarti almúgi bara lesið um slíka demanta á bókum. Sumar hverjar þýddar beint úr dönsku... og ef ekki... þá úr amerískum þankagangi hins menntaða manns, sem kallar sig Íslending. Ef það er þetta sem þjóðin vill...... ja þá getur hún sjálfri sér um kennt.

Að lokum: Don't Ask me about Askar. Það er kapítúli út af fyrir sig.


mbl.is Finnst „fráleitt“ að embættismenn fari í frí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Brjánn Guðjónsson, 21.5.2009 kl. 21:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband