Aðalstöðin. Leigubílastöð eða útvarpsstöð?

Hvað með útvarpsstöðina gömlu, Aðalstöðina? Er hún öllum gleymd? Hver ætli eigi það? Er þá ekki hægt að rífast yfir því?
mbl.is Aðalstöðin fær ekki að nota nafnið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Aðalstöðin (útvarp) var gleypt með húð og hári af Fínum miðli, minnir mig, og fannst þeim amerísku sem áttu hluta í því fyrirtæki hún vera ósegjanlega hallærisleg og breyttu henni í Gull, stöð sem spilaði bara gömul, vinsæl lög eftir ströngum spilunarlista, mælt mál þótti líka hallærislegt, nema til að segja hvað klukkan væri og svona ... hehehehe. Þetta gæti hafa verið 1997 eða 1998 sem stöðin var tekin af lífi. Ég var að vinna þarna í mörg ár og fannst hún mjög skemmtileg, svona bland í poka útvarpsstöð.

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 11.11.2007 kl. 14:20

2 Smámynd: Bergur Thorberg

Já, svona var þetta. Ef ég man rétt var ég einu sinni í viðtali á stöðinni hjá Gulla Helga og man að það var voða mjög kósí stemming í Aðalstrætinu.

Bergur Thorberg, 11.11.2007 kl. 14:25

3 Smámynd: www.zordis.com

Aðalstöðin var offsalega notaleg útvarpsstöð með yndislegu starfsfólki!  Margar Perlur fóru um háaloftið jafnt liðnir sem látnir en margar útvarpsstjörnur byrjuðu sinn feril á mörruðu gólfi gamla hússins á horninu!

....

www.zordis.com, 11.11.2007 kl. 23:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband