Björgunarhringurinn og bringuhárið eina

Blessuð sé minning þessarar konu. Hún var víst voða góð við son sinn. En í ljósi þess hvernig hún dó ætla ég að halda áfram að vera forljótur. Ég ætla að hafa eyrun (vængina) eins og þau hafa alltaf verið, stór og útstæð, nasaholurnar misstórar, mislanga fætur, kinnfiskasogið, brjóstin góðu, hökuna löngu, bringuhárið eina, vömbina vaxandi, björgunarhringinn og afturendann íturvaxna. Og kollvikin stækkandi. Engir rándýrir lýtalæknar fyrir mig. Enda held ég að sá sem tæki mig að sér yrði að vera meira en snillingur til að laga mig til. Svo er náttúrulega skammdegið skollið á og þá sést maður ekki eins vel.
mbl.is Móðir Kanye West látin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stefán Þór Steindórsson

Þú kemst sko aldrei í fréttirnar með þessu útliti.. En mæli nú samt ekki með að verða frægur fyrir það að vera fallegur og dauður heldur

Stefán Þór Steindórsson, 12.11.2007 kl. 18:12

2 Smámynd: Bergur Thorberg

Maður veit aldrei Stefán!! Fallega ljótur???????

Bergur Thorberg, 12.11.2007 kl. 19:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband