Barið á Grænlendingum.... eins og venjulega

Djö....... tvöfalt siðferði. Íslendingar og Japanir veiða hvali í vísindasky(i)ni!!! Heiðarlegir Grænlendingar fá ekki að veiða örfáa hvali eins og þeir gerðu og hafa gert um árabil án þess á nokkurn hátt að trufla lífríki sjávar. Og þeir selja ekki afurðirnar út um allar jarðir, nei þeir lifa einfaldlega á þessu eins og öðru sem finnst í þeirra nánasta umhverfi. Hinar svokölluðu siðmenntuðu þjóðir ættu að skammast sín niður í skott. Svo þegar það hentar t.d. Japönum og Íslendingum, þá eru þeir frumbyggjasjómenn!! Svei!!!!
mbl.is Mega ekki veiða hnúfubak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kreppumaður

Ja´ljótt er það að mega ekki lengur róa út á sjó og skutla dýr úr kajaknum sínum til þess að fá gott spik að éta!  Nú neyðast Grænlendingar að gagna (með okkur Íslendingum) endalega að ísbjarnastofninum dauðum, svo þeir svelti ekki í hel!

Kreppumaður, 26.6.2008 kl. 23:53

2 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

tad er af sem ádur var tegar madur fór á kæjann med stórann tvottabala til ad festa kaup á gódu kvalkjöti og segja ....Fylltann takk.

tad var nú á vestfjördum.

Knús á tig inn í gódan dag Bergur minn.

Gudrún Hauksdótttir, 27.6.2008 kl. 05:33

3 Smámynd: Neddi

Einhvernvegin hef ég nú grun um að Íslendingar og Japanir hafi fulla samúð með Grænlendingum og hafi stutt þá í þessari viðleitni sinni til að afla sér matar.

Það væri nær að tala um hræsni í Bandaríkjamönnum því til skamms tíma veiddu þeir hvali í skjóli frumbyggjaréttar.

Neddi, 27.6.2008 kl. 08:51

4 identicon

Ég veit ekki betur en frumbyggjar í Alaska veiði hnúfubaka. Sá hængur er þó á því veiðileyfi að veiðarnar mega eingöngu fara fram með gömlum aðferðum. Þetta þýðir að hvalirnir eru skutlaðir með handskutlum og það getur tekið frá nokkrum klukkutímum upp í nokkra daga að aflífa einn hval. Þetta þykir bandaríkjamönnum ekkert athugavert meðan þeir rísa upp á afturlappirnar þegar við veiðum nokkra hvali, með fljótvirkum og öruggum aðferðum.

Steinmar (IP-tala skráð) 27.6.2008 kl. 09:26

5 Smámynd: Bergur Thorberg

Sammála. Tvöfalt siðferði.

Bergur Thorberg, 27.6.2008 kl. 09:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband