Cristiano Blatter er nútímaþræll

Feðgarnir Cristiano og Sepp Blatter eru aldeilis sammála þessa dagana. Nú er Cristiano Blatter (áður Ronaldo) ekkert nema nútíma þræll. Að vera á samningi við knattspyrnufélag í 2-3 ár og þiggja milljarða fyrir er náttúrulega ekkert annað en nútíma þrælahald. Róa verður að því öllum árum að losa aumingja drenginn undan þessu skelfilega oki og góð byrjun er að faðir hans, Sepp Blatter, bendir okkur á þessa skelfilegu staðreynd. Þetta gæti endað með því, að þrællinn yrði örkumla og kæmist ekki í bankann sinn, til að taka út milljarðana sína, sem þessir skelfilegu þrælahaldarar hafa skammtað honum af nísku sinni einni saman. Þrælahald verður ekki liðið í nútímanum. Allra síst í fótboltanum. Ó nei.
mbl.is Ronaldo frá í 10 til 12 vikur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sepp Blatter er eins og flestir í forystu knattspyrnumála í evrópu/heiminum, alveg úti að skíta.  Afhverju í andskotanum er hann að gala þetta þegar leikmenn hafa gengið kaupum og sölum árum saman á milli liða, og knattspyrnumenn í dag líða engan skort eins og þrælar gerðu í gamla daga.  Þetta eru bara móðgandi ummæli hjá þessu vesalings fífli í garð þeirra þræla sem virkilega upplifðu þrælahald fyrr á öldum. 

Hvernig í andskotanum ætlar hann svo að framfylgja boltanum ef leikmenn geta farið á milli liða þegar þeim hentar án þess að kosta neitt?  Svo þarf ekki nema einn umba til að æsa allt upp eða litla blaðagrein til að gera leikmanninn "leiðann" og hann er farinn eitthvað annað.  Stór hluti tekna liða eru einmitt sölur/kaup á leikmönnum og ef sá sjarmi yrði tekinn af boltanum þá hætti ég að horfa á boltann ásamt vel flestum.

eikifr (IP-tala skráð) 11.7.2008 kl. 00:25

2 Smámynd: Bergur Thorberg

Góðir punktar eikifr.

Bergur Thorberg, 11.7.2008 kl. 00:31

3 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Já þetta er alveg skelfilegt. Drengurinn lýður angistarkvalir.

Brynjar Jóhannsson, 11.7.2008 kl. 10:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband