Í göngutúr með franskri hefðarmær

Fór í langa strembna ferð í 101 í dag, sem reyndist þegar upp var staðið, ágætis svefnmeðal. Með í för var ung frönsk hefðarmær að nafni, Natashja Alexandra Presley. Virtist hún njóta ferðarinnar í rigningunni. Rignir líka í Reykjavík? Hún leit á mig spyrjandi augum og ég stamaði einhverju út úr mér um, að það gerðist stundum. Mér fannst eins og hún skildi ekki alveg hvað ég var að fara, enda franskan mín ekki verið fínpússuð upp á síðkastið. Fyrsti áfangastaður var Reykjavík Art Gallery á Skúlagötunni. Þangað varð ég að fara til að kveikja á öndunarvélinni minni, sem er tengd við íslensku krónuna. Sem betur fer var krónan ekki alveg dauð, þrátt fyrir öndunarvélarleysið alla nóttina, og færðist fljótt í hana líf og roði hljóp um kinnar. Þegar við fórum, andaði hún ótt og títt eins og tíeyringur í tunglsljósi. Því næst var ferðinni heitið á tónleika hjá Skrokkabandinu. Reyndust þeir hin besta skemmtun, þó svo hin franska játaði fyrir mér, að hún skildi ekki eitt einasta orð. Það var kannski eins gott, því sumir textanna voru eins og samdir í myrkraherbergi í skammdeginu og herbergið hafi verið fullt af sauðdrukknum mönnum með sáðlátsdrauma. Síðan skárum við okkur leið í gegnum rigninguna, með hausinn fullan af ljóðum, sem við höfðum samið á staðnum, og linntum ekki leið okkar, fyrr en við komum heim á Grettisgötuna. Sótti þá á mig þvílíkur svefn, að ég mátti ganga til rekkju og svaf ég vænan klukkutíma. Ég vaknaði við að sú franska klóraði í rúmstokkinn og horfði á mig spyrjandi augum? Eigum við ekki að fá okkur eitthvað að borða? Si vou plait? Að lokinni ljúfengri máltíð með eðalvínum, sá ég að sú franska var farin að ókyrrast. Þá gerði ég mér allt í einu grein fyrir því, að sú franska hafði ekki gert stykkin sín í ferðinni góðu. Svo nú er það bara regnhlífin og út, áður en það verður of seint.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Það verður að passa upp á þessar frönsku hefðarmeyjar, sérstaklega hafi þær ekki gert stykkin sín, í óratíma. - Vonandi hefur henni ekki orðið meint af, og þið náð á réttan stað áður enn allt gaf sig. - Það er þó bót í máli að þú mundir eftir regnhlífinni. - Því það þarf að skýla svona madömmum, þegar þær gera stykkin sín.  

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 12.7.2008 kl. 22:06

2 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Yndislegt.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 12.7.2008 kl. 22:08

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

skemmtileg frásögn

Brjánn Guðjónsson, 12.7.2008 kl. 22:35

4 Smámynd: Kreppumaður

Kannski ég bindi trúss mitt við hunda í framtíðinni, hljómar mjög vel.

Kreppumaður, 12.7.2008 kl. 22:45

5 Smámynd: Bergur Thorberg

Kreppumaður: Ég verð að kynna þig fyrir hefðarmeynni þegar þú kemur af fjöllum.

Brjánn og Guðný: Takk.

Lilja Guðrún: Hvað með mig? Það rigndi nú duglega á mig. En auðvitað: Damerne först.....

Bergur Thorberg, 12.7.2008 kl. 23:07

6 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Er ekki hægt að fá svona "franska prinsa". Þeir eru örugglega tryggari en íslenski karlmaðurinn.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 12.7.2008 kl. 23:12

7 Smámynd: Bergur Thorberg

Guðrún: Ég get ábyggilega reddað þér einum, en þú verður bíða svona í eitt ár. Þú skilur.....

Bergur Thorberg, 12.7.2008 kl. 23:33

8 Smámynd: Kreppumaður

Það hljómar óneitanlega vel að einhver vilji kynna mig fyrir hefðameyjum, svo ég þarf að þiggja það boð.  En hvenær ég verð í bænum er erfiðara að segja?  Sennilega ekki fyrr en um miðjan ágúst.

Kreppumaður, 12.7.2008 kl. 23:35

9 Smámynd: Bergur Thorberg

Kreppumaður: Þá verð ég í London eða BNA. Ef almættið leyfir. Í minni fjallgöngu.

Bergur Thorberg, 12.7.2008 kl. 23:50

10 Smámynd: Kreppumaður

Þetta var líka of gott tilboð til þess að verða að veruleika.

Kreppumaður, 13.7.2008 kl. 00:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband