Fullreynt í fjórða?

Sá er upprennandi þessi. Þarna er einhver harmleikur á bak við, sem yfirvöld og fjölskylda viðkomandi pilts verða að vinna úr saman. Ef rétt er að hann sé sekur um að hafa ráðist á leigubílstjórann, þá er málið komið á mjög alvarlegt stig. Það er reyndar mjög svo eftirtektarvert að unglingi, sem grunaður er um svo alvarlegan glæp, sem líkamsárás vissulega er, skuli sleppt svo fljótt úr haldi, sem raun bar vitni. Lítur lögreglan á svona ofbeldi sem smámál? Það er sko ekkert smámál þegar ráðist er að fólki eins og lögreglan sjálf komst svo að, þegar handtaka átti piltinn öðru sinni. Í þessu tilviki skulum við forðast að sanna orðatiltæki eins og, allt er þegar þrennt er og fullreynt í fjórða. Þá gætum við setið uppi með ennþá alvarlegri glæp.
mbl.is Látinn laus en handtekinn skömmu síðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Já þarna eru greinilega mikil vandamál á ferðinni. Oft er það nú þannig að foreldrarnir eru ekki til samvinnu í svona málum þar sem þau eru jafnvel sjálf í einhverju rugli. Ég þekki það af eigin reynslu að það er mjög oft sem þetta byrjar sem foreldravandamál sem ekki er hægt að leysa og fer að sjálfsögðu til barnanna líka. Eftir höfðinu dansa limirnir.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 13.7.2008 kl. 11:21

2 identicon

Það er nú bara þannig, með handtekið fólk, að það má bara ekkert halda því lengur en þörf er á vegna hvers máls fyrir sig. Síbrotagæsla er valmöguleiki sem dómstólar eru ekki hrifnir á að nota, að því virðist samkvæmt fjölmiðlum, ítrekað hefur maður séð frettir af því þegar dómstólar segja enga hættu stafa af manninum... svo heldur hann bara áfram.

Hallur (IP-tala skráð) 13.7.2008 kl. 11:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband