Ég er ekki leigubílstjóri.... hik........

Mér finnst nú þessi leigubílstjóri koma mjög heiðarlega fram. Hann var ekki tekinn ölvaður undir stýri, hafði drukkið daginn áður, játar samt brot og var ekki búinn að aka með farþega. Hvað haldið þið að það séu margir sem svipað er ástatt um á ferðinni t.d. á laugardags og sunnudagsmorgnum hér á landi? Telja sig fúllbefæra til aksturs en eru það ekki? Ég er ekki að mæla þessu bót, en maður: Líttu þér nær. Hvaða atvinnu sem þú svo stundar.
mbl.is Drukkinn leigubílstjóri á Keflavíkurflugvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða  Þórðar

Ég segi nú bara; drekka leigubílstjórar ekki brennivín einsog aðrir...sæi í anda fyrirsögnina;

-verslunarstjóri tekin undir áhrifum....ahhh...þetta var tæpt, en samt! 

Heiða Þórðar, 14.7.2008 kl. 16:14

2 Smámynd: Bergur Thorberg

Segðu!

Bergur Thorberg, 14.7.2008 kl. 16:21

3 identicon

Það segir samt að talsvert hafi mælst í honum, hann er atvinnubílstjóri og á þar með ekki að vera að drekka dag eða kvöld fyrir vinnu. Ef hann hefði verið með farþega í bílnum sem hann ætlaði sér, hefði lent í eitthverju og eitthvað getað komið fyrir... Mér finnst alltof margir leigubílstjórar drekka að kvöldi eða um nótt fyrir vinnu.

Jónína (IP-tala skráð) 14.7.2008 kl. 16:41

4 Smámynd: Kobbi Trukkakall.....

taka leyfið af þessu fífli eins og skot þessi maður er náttúrulega ekki heill í hausnum svo sem ekki frekar en aðrir sem aka fullir en þetta á að kallast atvinnubílstjóri og er stéttinni til háborinnar skammar.......

og hvað ætli hann sé búinn að sleppa oft svona eða jafnvel verri......

Kobbi Trukkakall....., 14.7.2008 kl. 16:48

5 Smámynd: Sigrún Sigurðardóttir

leigubílstjórar já, dóttir mín pantaði sér leigubíl síðasta vetur og bílstjórinn var fullur um hábjartan dag....

Sigrún Sigurðardóttir, 14.7.2008 kl. 19:44

6 Smámynd: Bergur Thorberg

Ljótt að heyra Sigrún.

Bergur Thorberg, 14.7.2008 kl. 19:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband