Villir hann? Stillir hann?

Ólafur vill. Ólafur vill ekki. Ólafur veitir ekki viðtöl í dag. Kannski aldrei. Ólafur er inni. Eða kannski er hann úti. Allt meðan skátaflokkur Sjálfstæðisflokksins í borginni brallar með misheppnuðum spunameisturum í bílakjallara Ráðhússins. Nú þegar Framsóknarmenn eru einnig mættir í kjallarann gætu þeir kannski rætt fatamál eða bara bílamál. Ég ætla að fara í sund eða stendur nokkuð til að leggja niður sundlaugarnar? Ég hef greinilega ekki hundsvit á Borgarmálum enda aldrei boðaður á leynifundi í musteri valdsins við Tjörnina.
mbl.is Bera til baka fréttir um Tjarnarkvartett
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ég var að koma úr sundi held ég fari bara aftur, kannski bara í sjóinn núna! -

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 14.8.2008 kl. 18:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband