Vanmetinn leikmaður

Darren Fletcher, sem oft hefur nú verið úti í kuldanum hjá Man U, heldur þeim á floti þessa dagana. Ég hef nú oft sagt það við fjandvini mína í Man U, að Darren Fletcher hafi verið mjög vanmetinn leikmaður genum tíðina. Það er að koma í ljós núna. Ég held meira að segja, að hann hafi einhvern tíma sagt: "Minn tími mun koma". Ég hef alltaf verið hrifinn af honum sem leikmanni og finnst að hann hafi ekki fengið nóg tækifæri hjá Man U. En að Man U sé komið á fljúgandi siglingu, eins og einhver sagði á blogginu, það er nú barasta út í hött og allt of snemmt að fullyrða eitthvað um það.
mbl.is Fletcher tryggði United sigur á Fratton Park
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pétur Orri Gíslason

Bergur ég treysti á það að þínir menn sem liggja særðir geri eitthvað í málunum og nái stigi eða stigum gegn Chelsea um næstu helgi. Það yrði magnað.

 Samþykkt?

Pétur Orri Gíslason, 25.8.2008 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband