Peningar í markmannsþjálfun

Já já, Þetta er í fínu lagi. Styrkja þá sem standa sig vel. Vonandi verða þessir peningar notaðir vel. Ég vil gera það að tillögu minni að hluti af þessum peningum verði notaður til sérþjálfunar hinna ungu og efnilegu markvarða okkar. Það sýndi sig á Ólympíuleikunum að góð markvarsla er lykilatriði í að vinna leiki. Við þurfum toppþjálfara (erlendan) sem helgar sig eingöngu því að þjálfa landsliðsmarkmennina. Auðvitað þarf að þjálfa allt liðið og við vitum að góð vörn er líka lykilatriði og hjálpar markmanni geysilega mikið. Bara svona að lokum: Menntamálaráðherra: Ekki samt gleyma okkur listamönnum. Við þurfum ekki svo afskaplega mikið, en eitt er víst að listin býr til peninga fyrir íslenskt samfélag, alveg eins og handboltinn. Svo er bara að mæta og hylla strákana og þakka fyrir sig.
mbl.is HSÍ fær 50 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Seldu bara þína list eins og ég sel mína vinnu dag frá degi.  Af hverju á ríkið alltaf að kaupa list listafólks sem enginn vill kaupa?

Kjarval (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 20:41

2 Smámynd: Bergur Thorberg

Einu peningarnir sem ég hef fengið frá ríkinu fyrir listsköpun mína, þó ég hafi kynnt Ísland víða um heim eru kr. 30.000.- sem Kristinn Hallson reddaði mér einu sinni úr Menningarsjóði félagsheimila. Þó upphæðin hafi ekki verið há, þá hjálpuðu þessir peningar mér á sínum tíma. Félagsheimilasjóðurinn er hugsaður til að hjálpa listamönnum að ferðast um landið með list sína, Kjarval minn.

Bergur Thorberg, 26.8.2008 kl. 21:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband