Vigdís kennir mönnum að hætta að leika

Það er sko líf eftir forsetann. Gott fyrir Vigdísi okkar allra að fá að dunda við eitthvað í ellinni. Hvað hún á að gera hef ég ekki hugmynd um en gæti hún ekki tekið að sér að fá fólk til að hætta að leika, t.d. stjórnmálamenn? Og gæti hún ekki kennt misvitrum stjórnmálamönnum að hætta að leika af sér, ofleika og leika sér með almannafé? Og fengið þá til að hætta að leika við hvurn sinn fingur, yfir afrekum sem aldrei hafa verið unnin? Mikið held ég að flestir yrðu ánægðir, ef það tækist hjá henni blessaðri.


mbl.is Fyrsti sendiherra leiklistar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristbergur O Pétursson

Þú ert eiginlega kominn með handrit fyrir fyrrum leikhússtjórann. Miklu betra að stofna leikhús fyrir uppgjafastjórnmálamenn en að senda þá í Seðlabankann. Þeir gætu leikið af fingrum fram eins og þeir voru vanir án þess að valda tjóni.

Kristbergur O Pétursson, 28.9.2008 kl. 10:28

2 Smámynd: Bergur Thorberg

Já, eða kaupa stóran sandkassa, þar sem þeir gætu, ótruflaðir, leikið hvern annan grátt?

Bergur Thorberg, 28.9.2008 kl. 10:36

3 Smámynd: Kristbergur O Pétursson

Stjórnmálamenn hafa alltaf haft tilhneigingu til að vera á gráu svæði. Í sandkassa eða á málefnalegri eyðimörk. Samt aldrei of fjarri sviðsljósinu.

Kristbergur O Pétursson, 28.9.2008 kl. 10:42

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Strákar það er svakaleg vinna að fást við amatöra.  Vil ekki leggja það á Vigdísi mína.

Ía Jóhannsdóttir, 28.9.2008 kl. 11:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband