Mér er sossum skítsama

Ekki er ég Sjálfstæðismaður þó ég telji mig sjálfstæðan mann. Ég verð samt að lýsa þeirri skoðun minni hér að mér líst mun betur á Kristján Þór Júlíusson en Bjarna Benediktsson sem formann Sjálfstæðisflokksins. Engeyjarættin má alveg fá frí, flestum að meinalausu. Vilja Sjálfstæðismenn að flokknum verði stjórnað úr Garðabæ og Hafnarfirði? Mér er svo sem skítsama, en ég hugsa að það verði flokknum ekki til góðs.


mbl.is Kristján Þór í formannskjör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Já, alveg er mér sama ég fæ hvort sem er engu um það ráðið hvor hreppir titilinn, né heldur hvor kemst inn á þing.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 22.3.2009 kl. 19:08

2 identicon

Flokknum er varla stjórnað af Garðabæ og Hafnarfirði heldur Valhöll.....Vill frekar kjósa fólk sem er hæft til starfa frekar en að horfa til ættartengsla. Finnst það frekar barnalegt. Bjarni er málefnalegur og vel liðinn á þingi hjá stjórnarmönnum og stjórnarandstöðu. Segir mikið um hans fylgi

Jón (IP-tala skráð) 22.3.2009 kl. 23:58

3 Smámynd: Hörður B Hjartarson

Mæl manna heilastur , fátt er svo með öllu illt að ei boði gott - - - .

Hörður B Hjartarson, 24.3.2009 kl. 17:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband