Sjónarspil

Þvílíkt sjónarspil. Almenningur gleypir við öllu....... eins og á Íslandi.
mbl.is Dalurinn varð að hálfri milljón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Veit ekki hvort þú ert svona ílla sofinn en kannski að þú lesir fréttina aftur!

Nema þú sért svo vitlaus að ætlast til að maðurinn borgi sjálfur fyrir kostnaðinn sem fylgir því að reka eitt stærsta fyrirtæki í heiminum, og fyrir 1dollara! Kostnaðurinn sjálfur er svipaður og bankastjórar Byrs eru með í árslaun, fyrir utan kostnað, dáltill stærðarmunur þar á ferðinni!

Þannig að allt í allt þá er hann að gefa gríðalegan pening eftir sem hann ættu jú rétt á og vonandi er hann að gera rétta hluti með fyrirtækið þannig að það nái sér á strik.

Addi (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 14:59

2 identicon

Er enginn með viti þarna? Bílaleigubílar í NY fyrir 31000 dali?!

Hefðu getað kallað mig til og ég hefði getað keypt fyrir þá bíl á 3000$, með fluginu út!

Bjarni Ben (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 16:37

3 Smámynd: Bergur Thorberg

Laun eru oftar en ekki falin í kostnaði. Finnst þér þetta allt eðlilegt "Addi" eða hver sem þú ert.

Bergur Thorberg, 3.5.2009 kl. 17:42

4 identicon

Ef þú hugsar í krónum færðu krónur, ef þú hugsar í milljónum færðu milljónir.

Ef gamli stjórnandinn fékk að minnsta kosti 1,67 milljarði fyrir 3 mánuði, sem væri þá 6,7 milljarðir í árslaun, er Edward Liddy með að minnsta kosti 113 sinnum lægri laun en forveri sinn, þó það sé "falið í kostnaði". Jafnframt eru "laun" hans þá u.þ.b 1/187.000, eða 0,000005% af neyðarláninu sem AIG fékk um daginn.

Nú veit ég ekki hvort bloggarar hafi reynslu af því að stjórna stórfyrirtækjum eins og AIG en ég sé ekki ástæðu til þess að láta manninn keyra um á einhverjum "trabant" auk þess sem það væri nú ekki traustvekjandi fyrir stjórnanda tryggingafélags.

Minnipokamaður (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 19:01

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

$163.000 fyrir lögfræðikostnað??!! Greiðir framkvæmdastjórinn  lögfræðikostnað fyrirtækisins?

Minnipokamaður....sýnist réttnefni...., menn eiga ekki að segja laun sín önnur en þau eru í raun og veru, hvernig sem þau eru greidd. Svo hefði ég haldið að það væri einmitt sterk auglýsing fyrir tryggingarfélag að láta forstjórann aka um á Trapant. Það sýndi þó umfram allt að hann hljóti að vera vel tryggður!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.5.2009 kl. 20:49

6 Smámynd: Bergur Thorberg

Það er engin ástæða að láta hér í minnipokann Axel! TRABANT!! Hahahahaha...

Bergur Thorberg, 3.5.2009 kl. 21:08

7 identicon

Axel: Menn eiga heldur ekki að vera að ásaka aðra um lygar nema hafa alvöru sönnunar gögn. Ég veit ekki hvernig svona málum er háttað hjá svona fyrirtækjum en þessi frétt er þýdd og gæti verið að þetta sé spurning um skilgreiningu. Það gæti alveg verið að hann hafi þurft að borga sjálfur út eitthvað tengt þessu.

Það eina sem ég er að reyna að benda á er að 59 milljónir íslenskra króna er bara nákvæmlega ekki neitt í dag og ef eitthvað af þessu eru laun falin í kostnaði þá er það svo lítið að það tekur því varla fyrir hann að vera að standa í þessu.

Stundum verður maður bara að líta á heildarmyndina. Það kostar mikinn pening að sinna þessu starfi og svona gæjar verða aldrei á trabant nema mögulega fyrir "publicity stunt" en þá erum við líka komnir í allt aðra umræðu.

Minnipokamaður (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 21:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband