Sýndarmennska og yfirklór

Sýndarmennska og yfirklór. Allan tímann var það ætlan skilanefndar Kaupþings og bankastjóra að þvo hendur sínar líkt og Pílatus gerði forðum og segja: Við erum búnir að gera skyldu okkar og verja bankaleyndina, nú skulu stjórnvöld sjá um restina. Kannski Steingrímur hafi hringt? Varla. Enn eitt plottið. Fáum treystandi lengur í valdastöðum þessa þjóðfélags okkar. Tekur vitleysan og valdagræðgin aldrei enda. Spillingin er svo útbreidd að fólk veit ekki hvar það á að stíga niður í mótmælum sínum. Svo eru menn í því að vernda hvern annan í hærri stigum þjóðfélagsins. Það sem fram fer hér í dag og hefur farið fram undanfarið, fer í allar skólabækur framtíðarinnar, sem dæmi um valdhroka, misbeitingu valds og spillingu innan stjórnkerfis og viðskiptalífs. Á það verður ekki sett lögbann svo glatt.
mbl.is Falla frá lögbanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ja, lögbann á efni skólabóka? Úr þeim hefur verið útrýmt ýmsum sannleikanum  og það ekki alls fyrir löngu... þó ekki hér.... ekki enn...  eða hvað sagði ekki Eisenhower? "Takið sem mest af myndum af því, sem þið sjáið hér í útrýmingarbúðunum, því sá tími mun koma að menn munu segja þetta þvælu og uppspuna."... muni ég rétt. - Nú og svo er það hið sígilda dæmi þegar kirkjuþing í Konstantínopel samþykkti á fjórðu öld að fjarlægja endurfæðingu sálarinnar,  úr kristinni trú... var eitthvað ekki hentugt kirkjunni; hvað varð þá um Helvíti og refsingarnar allar, sem eru jú dándi gott stjórntæki... víða.

Helga Ágústsdóttir (IP-tala skráð) 4.8.2009 kl. 07:45

2 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Held að þú hafir hárrétt fyrir þér.

Georg P Sveinbjörnsson, 4.8.2009 kl. 13:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband