Tobbi málar bæinn rauðan. Thorberg 14. sept.

Tobbi málar bæinn rauðan

Thorberg málar í Austurstræti 2006

Það er hvergi orðið friður fyrir þessum listamannsræflum. Það er ekki nóg með að þeir fylli öll kaffihús borgarinnar, uppteknir við að leysa lífsgátuna, heldur er varla gangandi orðið á gangstéttum borgarinnar fyrir þessu dóti, klínandi mann út í málningu og kaffisulli,(þið vitið nú hvað það er erfitt að ná kaffi úr ljósum fatnaði). Það er líka orðið vonlaust að leggja uppi á gangstétt fyrir þessum ófögnuði. Og til að bæta gráu oná svart, vilja þeir fá borgað fyrir það sem þeir kalla listaverk. Eins og þeir fái ekki nóg frá Ríkinu? Nei grátandi drengur með tár á kinn, það er sko alveg nóg fyrir mig. Og Móna Lísa í forstofunni...........................


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Lómarnir hans Muggs og Baðstofumyndin með stórhöfðakonunni og hlutfallalausa barninu á undnu pappaspjaldi í greniramma er nóg fyrir mig. Hálfur fermeter af Stórval með fallandi Skjaldbreið og rolluportrettum er orginal.  Keypti hann að því kallinn var svo skrítinn og spilaði illa á nikku.

Restin er af þessum listamönnum ættu að fá sér vinnu sem pokadýr, nema þessi sem svínar borðdúkana svo fallega með kaffisullinu. Gott fyrir heilsuna hans líka því það væri stressandi fyrir hann að missa allt þetta kaffi túllann á sér.

Jón Steinar Ragnarsson, 15.9.2007 kl. 10:16

2 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Allt annað erindi hér á ferð:

Ég vona að þú takir þátt í umræðunum í Leshringnum á morgun sunnudag.

Marta B Helgadóttir, 15.9.2007 kl. 12:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband