Fyrirgefning syndanna

Syndaaflausnir í miklu úvali. Fyrstir koma, fyrstir fá. Aflátsbréf  með 30% afslætti. Ekki missa af þessu einstaka tækifæri. Vatikanið. ( Styrkt af Benedikt páfa). Gull er góðum manni betra en betrunarvist, þó svo að vistin væri í öðrum heimi. Batnandi manni er best að lifa. Í guðhræddum anda. Trúarinnar. Vonarinnar og því sem kemur upp á borðið hverju sinni. Amen.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kreppumaður

Ég ætla að fá eins og þrjú fyrir drýgðar syndir og svo eins og fjögur til vara, fyrir það sem koma skal.

Kreppumaður, 25.4.2008 kl. 23:42

2 Smámynd: Bergur Thorberg

Fyrst þú ætlar að verzla í svona magni, þá færðu þetta á miklu betri kjörum. Þú gætir hugsanlega fengið tvo fyrir einn eða sjö níu þrettán. Og ég banka  undir borðið. Málið dautt.

Bergur Thorberg, 26.4.2008 kl. 00:18

3 Smámynd: Bragi Þór Thoroddsen

Var að spá í hvort þetta gilti afturvirkt eða framvirkt, hvort hægt sé að dekka gamlar syndir eða hvort þetta er hugsað fyrir áformaðar syndir.

Væri gott að eiga svo sem tvennt af hvoru. 

vcd

Bragi Þór Thoroddsen, 26.4.2008 kl. 01:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband