Geymdur í gamla fangelsinu

Þetta er náttúrulega stærsta bankarán Íslandssögunnar, eins og einhver sagði. En við getum huggað okkur við það einn af forsprökkum ránsins er kominn bak við lás og slá. Hann er geymdur í gamla fangelsinu: Stjórnarráðinu. Og hans er vel gætt af fjölmiðlamönnum, sem er bestu fangaverðir sem völ er á. Það sleppur enginn auðveldlega framhjá þeim. Hreint ekki.
mbl.is Telur Stoðir ekki fara í þrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kreppumaður

Og brátt verður þessi hjallur vinnustofan þín!

Kreppumaður, 30.9.2008 kl. 10:06

2 Smámynd: Ingvar

Það  er kanski skárra en stærsta gjaldþrot Íslandssögunar.   Stoðir voru að fara að  kaupa 40% hlut í Baugi  og greiða með hlutabréfum í Stoðum. S.s hægrivasinn að selja vinstrivasanum. Stoðir og Baugur gátu ekki lagt Glitni til meiri fjármuna því að þeir eiga þá ekki til.  Núna er fjáfestingafylliríið  búið og gera þarf upp reikninginn upp með peningum og þá eru þeir ekki til, þá á og verður pabbi og mamma að grípa inní.

IHG 

Ingvar, 30.9.2008 kl. 12:44

3 identicon

Stærra var bankaránið þegar þáverandi ríkisstjórn íhalds og framsóknaríhalds rændi þjóðina bönkunum og lét í hendur vina og vandamanna á slikk.

Það var rán.  Munum það!

miðbæjarkomminn (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 23:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband