Hagkerfið í Alaska

Varaforsetaefni Repúblikana er aumkunarvert. Dregur upp einhver gömul mál um Obama sem hún heldur að hún geti slegið sér upp á. Það er með ólíkindum hvað Repúblíkanar geta verið naívir. Að velja þessa konu sem varaforsetaefni. Það má nú kannski segja henni til hróss, að henni hefur víst aldrei dottið til hugar að heimsækja Ísland og kynna sér hvernig fjármálastarfssemi fer fram hér á landi. Ef hún hefði tileinkað sér þá starfssemi, Þá væri hún nú enn í Alaska, í kuldanum. Ég tek það fram að ég styð kvenréttindabaráttu hér á landi sem annars staðar.


mbl.is Palin ræðst á Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kreppumaður

Það væri svo sem ekki vitlaus hugmynd að bjóða Ísland USA-mönnum til sölu á sama verði og þeir keyptu Alaska á í denn...?  (Verðið var 7.2 milljón dollarar.)  Þá gætum við líka kosið Obama.  OG losnað við að þurfa að hlusta á Davíð eða Geir, um áramót.

Kreppumaður, 4.10.2008 kl. 21:40

2 Smámynd: Bergur Thorberg

Kem þessari snilldarhugmynd á framfæri......strax. Andskotinn..... búinn að týna númerin hjá Davíð...... hringi þá bara í Geir.... eða Óla.... læt þig vita..... svo þú getir gert ráðstafanir..... strax.

Bergur Thorberg, 4.10.2008 kl. 21:57

3 Smámynd: Kreppumaður

Finnst að við eigum að fá 10% umboðslaun þegar skerið verður selt.  Það ætti að duga fyrir eins og nokkrum kaffibaunum og jafnvel kút af ódýru rauðvíni...

Kreppumaður, 4.10.2008 kl. 22:02

4 Smámynd: Bergur Thorberg

Ég hef öngva trú á því Anna mín, að þeir hafi tíma til að svara meili frá niðursetningum eins og okkur. Ekki núna. En sannarlega seinna.

Bergur Thorberg, 4.10.2008 kl. 23:34

5 Smámynd: Kreppumaður

Hreppsómaginn ég er kominn heim af barnum, búin að eyða ærgildi í vín.  Ekki svarar neinn mér!  Nema Bergur....

Kreppumaður, 5.10.2008 kl. 00:16

6 Smámynd: Bergur Thorberg

Ég sparaði einn sauðalegg. Hann er Þinn ef þú myndir einhverntíma drekka svo mikið rauðvín að þú rataðir ekki HEIM. Svangur.?Ekki hefði ég lyst á honum. Hann er bara fyrir gesti. Frá Útlöndum.

Bergur Thorberg, 5.10.2008 kl. 02:04

7 identicon

´Hagkerfið í Alaska: 50 % hærri þjóðarframleiðsla á mann en á Íslandi.  Reyndar er BNA sem heild líka með mun hærri þjóðarframleiðslu en Ísland, miðað við höfðatöluna frægu.

Hagspekúlantinn (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 07:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband