Maka krókinn

Það hafa margir makað krókinn á tryggingafélögunum í gegnum árin. Og reikningar verkstæða verið ansi feitir.Þetta veit ég fyrir víst. Hvers vegna að hafa millilið þegar kaupa á varahluti? Út í hött. Þannig að þetta er hið besta mál og gæti komið einhvers staðar til lækkunar á kostnaði bílaeigenda. 
mbl.is Segja upp samningum við verkstæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg

Tryggingafélögin hafa hins vegar ekki greitt það verð til verkstæða sem við hin þurfum að gera.  Þau eru það stór að þau hafa gefið út sjálf þann taxta sem þau borga.  Þetta verður örugglega ekki til að lækka kostnað bílatrygginga, því miður.

Sigurbjörg, 17.1.2009 kl. 11:14

2 identicon

En kannski verður þetta til þess að ekki þarf að hækka iðgjöldin. Sjóvá hefur undanfarin ár reynt að hagræða í rekstri sínum sem hefur leitt til þess að hækkanir þar hafa ekki orðið eins miklar og hjá öðrum.

Guðmundur (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 11:23

3 identicon

Það sem ég þekki til Sjóvá almennra að þá hafa þeir verið í farabroddi í ósangirni gagnvart réttingaverkstæðum og þeim sem hafa þurft að fá bætt tjón á ökutækjum. Ég veit það þar sem ég hef rekið 2sprautu og réttingaverkstæði og unnið fyrir öll tryggingafélögin. Þeir eru ábyggilega á bónusum fyrir að borga sem minnst í stað þess að hugsa um viðskiptavininn. Verkstæðin ættu að taka sig saman og loka á Sjóvá.

Baldur M Róbertsson (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 12:23

4 identicon

Lækka má iðgjöld með ýmsum hætti eitt er það sem Sjóvá er að gera í dag. Annað sem þeir hafa gert er að koma inn með auknar eigináhættur þannig að þeir þurfi ekki að bera tjón nema þau stærri. Nefni hér tvö dæmi:

Ef að tjón sem valdið er vegna ábyrgðartryggingar bifreiða nær 50.000 kr þá ber viðkomandi tryggingartaki 23.000 kr. eigináhættu þar til viðbótar kemur að viðkomandi missir endurgreiðsluna fyrir tjónlaust ár.

Í fjölskylduvernd þeirra voru þeir eitt sinn með undanþegin fyrstu 14,9% af metinni læknisfræðilegri örorku s.s. greiddu engar örorkubætur í dag hafa þeir heldur séð að sér þar sem þetta koma illa út í samkeppninni og sett inn breytt ákvæði sem hljóðar upp á hálfar bætur vegna 0-15 örorku. Samt sem áður er sambærileg trygging hjá örðum félögum að greiða þennan þátt að fullu. Þess ber að geta að 0-20% læknisfræðileg örorka er ein algengasta örorka sem greitt er fyrir.

= Sér er nú hver verndin

Gísli (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 12:26

5 identicon

Lækka iðgjöldin, hm? Þetta hlýtur að lagast - bráðum. Það þarf iðgjöld æðimargra 50 þús. garma til að bæta fyrir síðasta útspil afkomandands á 15 millj. tækinu, hm. Eeennn, hvað varð af GIFT-reikningunum? Ich frage, natürlich?,

Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband