VONIN...... Lykilorð ríkisstjórnarinnar.

" Ég vona", "við bindum vonir við", "vonandi", "það er von okkar". Já vonin er blíð. En vonin skaffar ekki mat á borð landsmanna. Hugmyndafræði ríkisstjórnarinnar er bundin í voninni um að þetta "reddist". Það er eiginlega ömurlegt að hlusta á þetta vonlausa skvaldur um vonina af hálfu ríkisstjórnarinnar. Vonandi tekur það enda en það er líklega borin von. Og burtu með rándýra vonlausa hugmyndafræðinga sem ríkisstjórnin hefur á sínum snærum. Frá þeim kemur bara bull. Fari þeir í bullandi........
mbl.is Icesave losi lánastíflu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Við vonum hið besta og ljúgum sem mestu í sem flesta".  Gætu þetta ekki verið einkunnarorð stjórnmálamanna samtímans? 

Pjetur Hafstein Lárusson (IP-tala skráð) 30.8.2009 kl. 10:21

2 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Afhverju má eki vona? Veistu þú lausnina 100%.  Getur þú lofað einhverju? Hefur stjórnarandsaðan lausnir sem lofa einhverju 100%? Nei það held ég ekki. 

Mér finnst svartsýnin það eina sem þeir sem eru á móti voninni bjóða upp á.  Ég segi ,,vonin er betri en svartsýnin".

Sumir sögðu hér áður fyrr ,,vonum það besta en búumst við hinu versta" Engin getur sagt fyrir um framtína.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 30.8.2009 kl. 11:44

3 Smámynd: Bergur Thorberg

Naglinn á höfuðið Pétur. Svartsýn er sú von sem byggist á voninni einni saman.

Bergur Thorberg, 30.8.2009 kl. 11:53

4 identicon

 Sæl sveitungi .

Ég vona að vandinn hann fjúki

á vonaðan ruslahaug.

Og með honum stjórnmálin strjúki

skörðóttan geislabaug.

Ég vonaði að bankinn vildi

veita lítið lán.

Þeir skild'ekki að ég skildi

og sögðu þetta smán.

Þú skalt borga þótt þú eigir ekkert

og restin fer í þumalskrúfu för.

í lögheimtu er allt svo fínt og lekkert

og lúserinn hann etur eigin mör.

kunst (IP-tala skráð) 30.8.2009 kl. 14:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband