Færsluflokkur: Bloggar

Ekki menn til að moka sinn eigin flór

Hvers konar kjaftæði er þetta eiginlega? Með fullri virðingu fyrir Geir H. Haarde, þá gátu Sjálfstæðismenn ekki mokað sinn eigin flór. Enda uppsafnaður risaskítahaugur eftir áratuga valdasetu. Og Framsóknarflokkurinn hefur skitið drjúgt í þann haug gegnum árin. Mitt í öllum hörmungunum er þó ljós í myrkrinu og það er, að þessum flokkum hefur verið gefið frí og vonandi fyrir hina íslensku þjóð, verður það frí, afar langt.
mbl.is Samfylkingin brotnaði undan storminum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Voff voff...

Voff voff voff voff voff voff....... já já ex minn... afsakið þá......
mbl.is Afsökunarbeiðni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umskurður skal það vera, að ég held

Bíddu! Heitir þetta ekki umskurður? Umskurn finnst mér orðskrípi. Veit einhver betur?
mbl.is Bandaríkjamenn með umskurn á heilanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grænt og vænt

Þarf ekki einu sinni að leyfa kannabisnotkun á Íslandi. Bara flytja afurðirnar út. Ekki veitir af gjaldeyri inn í þjóðarbúið. Svo mætti alveg leyfa þetta. Varla hættulegra en brennivínið. Grænt og vænt og engin aukaefni!!
mbl.is Enn ein ræktunin upprætt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldur

Ljótt er að heyra. Vonandi fer allt vel. Blaðamaðurinn hefði samt ekki átt að flýta sér svona mikið því fyrirsögnin á forsíðu mbl.is er kolvitlaus.
mbl.is Eldur í plastverksmiðju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hahahahahahahaha

Einhvern tíma hefði nú verið sagt: Tell me another one!!!!! Danir reka rússneska björninn á brott!!! Hahahahahaha. Ja, tímarnir breytast.
mbl.is Bægðu rússneskum þotum frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþingi öðlast meira traust

Jæja, loksins kom að því að greindarvísitalan hækkaði á Alþingi. Ekki var vanþörf á.
mbl.is Geir kveður og X heilsar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þýskt gúrkufokk

Þýska skólaskipið Gorch Fock er statt á Faxaflóa. Er á þetta bætandi? Er ekki komið nóg af fokki á Íslandi? Það er allvega ekkert gúrkufokk á Íslandi.....  nema þá þetta þýska. En þeir sem hafa áhuga, geta skoðað þýska fokkið um helgina.
mbl.is Gorch Fock komið á Faxaflóa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hælarnir uppi og tjaldið fallið

Það læðist að mér sá grunur, að stjórnmálamenn eða ímyndarsmiðir þeirra, verji löngum tíma í að finna gáfulegar setningar sem fara vel í fjölmiðlum, oft á tíðum burtséð frá innhaldi yfirlýsingar eða ræðu. "Hælarnir voru niðri", er dæmi um það. Það er af nógu að taka í orðræðum gáfaðra Íslendinga. En því miður tel ég ekki alla Alþingismenn tilheyra þeim hópi.
mbl.is Hælarnir voru niðri í viðskiptaráðuneytinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðar fréttir fyrir Tottenham

Frábærar fréttir fyrir Tottenham. Það væri ekki gott á þessum tímapunkti að missa King í enn meiri meiðsli. Hann þarf að taka það rólega og byggja sig almennilega upp fyrir baráttuna framundan í úrvalsdeildinni.
mbl.is King yfirgefur enska landsliðshópinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband