Færsluflokkur: Bloggar

Bresk nekt

Er ekki tilvalið fyrir íslensku bankana að kaupa þessa mynd. Bresk nekt í öllu sínu veldi.
mbl.is Nektarmynd fyrir 99 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæpamenn

Ég held við ættum að nota rétt orð um einkavæðingu bankanna. Þeir voru afhentir glæpamönnum af siðspilltum stjórnmálamönnum. Siðspilling Framsóknarmanna í þessu máli er með þvílíkum endemum að þess verður minnst meðan Ísland er byggt. Og Finnur Ingólfsson...... þvílíkur spillingarrefur..... og glæ..........
mbl.is Lentu í höndunum á ævintýramönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig er þetta með deCode?

Hvernig er þetta eiginlega með deCode? Ætlar það fyrirtæki aldrei að rísa upp úr öskustónni?
mbl.is Bandarísk hlutabréf þjóta upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt í lagi, svo lengi sem maður kemst upp með það

Já já. Þó Andri Óttarsson sé grandvar maður, þá er þetta sama sagan um spillta stjórnmálamenn. Svo lengi sem maður kemst upp með hlutina þá er allt í lagi. Ef að kemst upp um okkur strákar, ja þá biðjumst við bara afsökunar og málið dautt!! Ísland, gamla Ísland.

Zlatan í Tottenham

Zlatan í Tottenham...... ekki spurning.
mbl.is Segir Zlatan mega fara ef hann vilji
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spyrjiði bara Finn

Þetta er ósköp einfalt. Framsóknarmenn fengu sinn helming eins og alltaf. Og lugu svo í þokkabót. Spyrjiði bara Finn Ingólfsson eða Valgerði Sverrisdóttur ef þið trúið mér ekki.
mbl.is Pólitísk tengsl áhyggjuefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða bitling skyld'ann fá???

Hvaða bitling skyldi Guðmundur hauksson fá núna. Hann hefur vaðið í spillingu um langt árabil og fer varla að hætta því núna. Sveiattann.
mbl.is Tilfinningaríkur fundur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér er sossum skítsama

Ekki er ég Sjálfstæðismaður þó ég telji mig sjálfstæðan mann. Ég verð samt að lýsa þeirri skoðun minni hér að mér líst mun betur á Kristján Þór Júlíusson en Bjarna Benediktsson sem formann Sjálfstæðisflokksins. Engeyjarættin má alveg fá frí, flestum að meinalausu. Vilja Sjálfstæðismenn að flokknum verði stjórnað úr Garðabæ og Hafnarfirði? Mér er svo sem skítsama, en ég hugsa að það verði flokknum ekki til góðs.


mbl.is Kristján Þór í formannskjör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins og nýr maður

Á þessari frétt sér maður að endurnýjunin er á fullu innan Sjálfstæðisflokksins. Einar Kristinn kemur bara eins og nýr maður inn í þetta. Geri aðrir betur!!
mbl.is Einar Kristinn í efsta sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óhuggulegt ef satt reynist

Jahá. Fyrirtækið Baugur Group borgar farsímareikninga fyrrverandi eiginkonu Jóns Ásgeirs og barna hans. Fyrirtækið borgar einnig (eða átti að borga), rándýra miða á fótboltaleiki fyrir "elítuna", sem verður náttúrulega að skemmta sér "konunglega". Og allt er þetta meira eða minna í boði íslensku þjóðarinnar, því þessir menn virðast hafa skenkt sér lán úr hinum föllnu bönkum að eigin vild. Þetta er hreint og beint óhuggulegt, ef rétt er með farið í þessari frétt.
mbl.is Newcastle með kröfu í bú Baugs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband