Færsluflokkur: Bloggar

Hvað er þessi hjörð manna og kvenna yfirleitt að gera á Alþingi?

Má ég nú biðja þetta ágæta fólk að fara að sinna störfum sínum fyrir þjóðina eða segja af sér ella. Allur málatilbúnaður í sambandi við breytingar á stjórn þingsins í dag, er Alþingismönnum til háborinnar skammar. Þetta barnalega hjal endurómar út í allt þjóðfélagið engum til hagsbóta. Ég hallast meir og meir að því að gera þurfi róttækar breytingar á stjórnarskrá og kjósa á öðrum forsendum en gert er í dag. Það nægir að líta yfir þessa hjörð manna og kvenna sem sitja á Alþingi í dag, til að sannfærast um það. Því miður.
mbl.is Mögnuð fráhvarfseinkenni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Langur starfstitill

Starfstitill Steingríms J. Sigfússonar er orðinn svo langur að hann kemst ekki fyrir á neinum venjulegum blöðum. Því líkt hvað maðurinn er störfum hlaðinn. Svo mættu þeir alveg sleppa þessum þingfundi í kvöld og framkvæma í staðinn.
mbl.is Ekki hefðbundin stefnuræða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýir siðir komnir til að vera

Sturla: Það sem gerst hefur undanfarið í íslensku þjóðfélagi, BOÐAR NÝJA SIÐI í stjórnmálum. Fólk vill losna við eiginhagsmunapólitík og einkavinasamtök og almennt alla spillingu, sem hefur því miður grasserað hér á landi svo áratugum skiptir. Svo Sturla, sem aðrir, verða að búa sig undir nýja siði í stjórnmálum, hvort sem þeim líkar betur eða verr. Annars steinrenna þeir eins og hvert annað tröll þegar sólin kemur upp.
mbl.is Vona að atburðir við þinghúsið boði ekki nýja siði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin venjulegur loftbelgur

Ómar Ragnarsson!! Hann er sko enginn venjulegur loftbelgur!!! Það er alveg á hreinu.
mbl.is Ómar Ragnarsson: „Skelfileg lífsreynsla“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sagði Davíð að Jón Ásgeir yrði knésettur áður en hann hreyfði sig úr Seðlabankanum?

Firringin sem ríkt hefur hér á landi undanfarin ár í fjármálaheiminum, og yfirleitt í öllu sem viðkemur peningum, er slík, að það er ekki fyrir meðaljón að ná utan um hana. Menn hafa fjárfest (fyrir lánsfé), eytt og spent út um allar jarðir og ómældar fúlgur farið í svo kallaðar gerfiþarfir, þ.e. peningum eytt í einhverjar tilbúnar þarfir, dauða hluti sem við höfum ekkert með að gera. Úr þessu öllu varð svo ört stækkandi sápukúla sem nú er sprunginn. Ofan á allt þetta kemur svo pólitíkin. Tengsl stjórnmálamanna (og fyrrverandi stjórnmálamanna) inn í viðskiptalífið eru að koma í ljós og illt er ef satt er, að Davíð Oddson hafi sagt að áður en að hann færi úr Seðlabankanum, skyldi Jón Ásgeir knésettur. Það er ekki mitt að dæma, hafandi engar forsendur til þess, en vonandi kemur hið sanna í ljós með tímanum. Það er eitthvað bogið við þetta samt, segir mér hugur.
mbl.is Baugur í greiðslustöðvun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hreppaflutningar

Fá þeir ekki flutningsstyrk og nýjar mublur og málverk?
mbl.is Flutningum þingmanna frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara forvitni

Skyldu þetta vera fyrstu hamingjuóskirnar sem berast? Eða er fréttin birt vegna væntumþykju á Færeyingum? Bara forvitni.
mbl.is Árnaðaróskir frá Færeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fíflagangur!!

Og allt í boði VÍS!! Fíflagangur!!
mbl.is „Einn í einu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sveitamennska

Ja, bændaflokkurinn lætur ekki að sér hæða. Ríðum heim að Hólum.........
mbl.is Jón þingflokksformaður VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tómas Jónsson og grái fiðringurinn

Þetta er bara grái fiðringurinn sem vex upp úr kollinum á honum. Það er nokkuð ljóst.
mbl.is Tom sýnir gráa makkann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband