SIGTRYGGUR VANN

Mikið helv..... er þetta sniðugt hjá þeim glímumönnum. Einhvern veginn hefur þeim tekist að draga saman 14 þjóðir sem vita lítið sem ekkert um glímu og: BINGÓ!! Við erum orðnir heimsmeistarar! Það er eitthvað annað en í boltaíþróttunum. Boltamenn gætu lært mikið af glímukóngum. Þeir hafa glímt við ýmiss vandamál í gegnum tíðina en nú er málið leyst. SIGTRYGGUR VANN.
mbl.is Klappað og klárt fyrir HM í glímu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hehe já.

En hversu súrt væri það, ef síðan Rússar væru Heimsmeistarar í Íslenskri glímu??

Jón Sig (IP-tala skráð) 26.6.2008 kl. 21:09

2 Smámynd: Bergur Thorberg

Þú segir nokkuð. Nei nei. Við tökum þá á klofbragði.

Bergur Thorberg, 26.6.2008 kl. 21:12

3 identicon

Það er fullreynt. Héðan héldu borubrattir glímusnillingar til Rússlands (eða var það til Úkraínu?), og eftir nokkrar "viðureignir" var hreint ekki eins bratt upp í boruna á þeim, en hún kann að hafa verið eitthvað víðari.

Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 27.6.2008 kl. 08:31

4 Smámynd: Bergur Thorberg

sussusssssssssss

Bergur Thorberg, 27.6.2008 kl. 09:46

5 identicon

Æ, fyrirgefðu, Bergur minn - ég ætlaði nú ekki að vera svona orðljótur. En þetta var einhverntíma í haust og þeir voru teknir í pústið.

Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 27.6.2008 kl. 11:40

6 Smámynd: Bergur Thorberg

Þeir hafa þá ekki pústað mikið út eftir glímuna.

Bergur Thorberg, 27.6.2008 kl. 12:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband