Þúsund þakkir til ykkar allra

Var að koma heim af sýningunni minni á Laugavegi 51. Þvílík örtröð í allan dag og bara gaman. Gestir voru á öllum aldri og áberandi var hvað lá vel á öllum og allir virtust skemmta sér vel. Marga bloggvini mína var ég að sjá í fyrsta skipti og voru það fagnaðarfundir. Við þá segi ég sérstaklega: TAKK FYRIR KOMUNA. Og auðvitað við alla hina líka. Því miður gat ég ekki farið á sýningar hjá öðrum vegna þess að ég var að mála í allan dag og ekki fór ég á tónleika eða yfirleitt neitt. Sá ekki einu sinni flugeldasýninguna. Labbaði út kl. 01.30 en fram að þeim tíma var alltaf fólk hjá okkur. Veðrið lagaðist með kvöldinu og var bara býsna gott þegar lúnir fætur báru mig heim. Menningarnótt(hátíð) er löngu komin til að vera og er hátíð allra kynslóða. Alveg frábært. Það er skammt stórra högga á milli og þetta var nú aldeilis fábær upphitun fyrir handboltann í fyrramálið. Nú er bara að ná smá svefni og vakna hress og senda sterk hugskeyti til strákanna í Peking, fara svo í sundhöllina og taka smá sprett áður en maður tekur sýninguna niður með svolitlum söknuði. Takk allir þeir er keyptu af mér verk og vonandi getið þið notið þeirra. Gaman væri að fá sendar myndir á ímeilinu sem teknar voru á sýningunni, þeir sem því nenna en ekki er það nú skilyrði! Guys: I love you all. Megi draumar ykkar verða ljúfir og góðir í nótt.

Menningarnótt

mbl.is Flugeldasýning á sundunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

mikið er ég sammála þér Kaffimálari

bara smá pæling var þessi sýning flottari en síðast það var allavega mín tilfinning þá er ég að tala um flugeldasýninguna

því miður vissi ég ekki af þinni sýningu annars hefði ég kíkt við

Mr;Magoo (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 03:09

2 Smámynd: Sigrún Sigurðardóttir

Hefði alveg verið til í að vera í bænum í gær, hefði kíkt við hjá þér en alltaf nóg að gera enginn tími til að fara að heiman þessa dagana, til lukku með daginn. knúúús frá Ísafirði

Sigrún Sigurðardóttir, 24.8.2008 kl. 08:18

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Mikið var nú gaman að hitta þig í eigin persónu Bergur minn og sjá öll fallegu verkin þín.....eða það sem var eftir af þeim Sá eina bloggvinkonu okkar svífa út með mynd eftir þig undir handleggnum. Við lokuðum hjá okkur tveimur mínútum fyrir flugeldasýninguna .....Þú kemur bara á laugardaginn og slappar af í Ráðhúsinu.

Sjáumst!!! 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 24.8.2008 kl. 12:13

4 Smámynd: Bergur Thorberg

Sömuleiðis Katrín. Auðvitað mæti ég í Ráðhúsið. Afslappaður.

Bergur Thorberg, 24.8.2008 kl. 15:51

5 identicon

Ég kom við, heilsaði bara ekki upp á önnum kafinn mann með pensilinn en ég kvittaði í gestabók og rölti svo i burtu.

Ragga (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 20:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband