Klink fyrir lítilmagnann...... eins og venjulega

Stjórnvöld ættu að skammast sín fyrir að koma fram með svona frumvarp. Ég þekki til eins þeirra manna sem lentu í þessum óskapnaði íslenska ríkisins og hann hefur aldrei beðið þess bætur. Líf hans allt hefur verið ganga á glóðum og er hann nú 57 ára gamall. Harðduglegur og vel gefinn maður sem sviptur var sjálfsvirðingunni barn að aldri, og hefur oftar en ekki liðið vítiskvalir hér í þjóðfélaginu okkar. Það minnsta sem við getum gert er að láta peninga af hendi rakna og þá ekki svona klink eins og stjórnvöld greinilega ætla sér. Við megum ekki hafa þetta ljóta mál á samviskunni lengur, heldur hjálpa þessum mönnum eins og við mögulega getum og bæta þeim upp eitthvað af því, sem þeir hafa farið á mis við í lífinu.


mbl.is Telja bætur of lágar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband